fbpx

HÖNNUNARMARS: MUST SEE

HönnunUmfjöllun

Á HönnunarMars verður sýnd heimildarmyndin Trend Beacons í Bíó Paradís um fólkið sem spáir fyrir um hvað gerist í hönnun og tísku tvö ár fram í tímann, það eru nefnilega miklir peningar í spilinu fyrir réttar upplýsingar. Í myndinni var þremur slíkum spámönnum, þeim Christine Boland, RAVAGE og David Shah sem eru mjög stór í bransanum, fylgt eftir í þeim tilgangi að sjá spárnar unnar. Þetta nær svo mikið lengra en bara í tískuheiminn, þessir spámenn selja jafnvel upplýsingar sínar til bílaframleiðanda, til aðila í matariðnaðinum og í hótelbransanum.

“Tíska og hönnun eru áhrifavaldar í okkar daglega lífi. Flestir hafa ekki hugmynd hvernig tískutrend vakna til lífsins og skapa auð fyrir þá sem eru með puttann á púlsinum. Trend Beacons er innlit í þennan dulda heim trend spámennskunnar eða hvernig heimurinn sannarlega virkar”

Ég mæli eindregið með þessari mynd fyrir áhugafólk um hönnun, ég fékk að sjá myndina áður en ég fór út og hún er frábær. Sjálf er ég mikil áhugakona um slíkt spáfólk og fylgist t.d. vel með Li Edelkoort sem er sú allra stærsta í þessum bransa, og hef sótt fjölmargar sýningar sem hún stjórnar.

Miðar fást HÉR. 

x Svana

ÖÐRUVÍSI VEGGIR

DIYHugmyndir

Nei haldið þið ekki að ég hafi fundið þessa fínu færslu vistaða síðan ég veit ekki hvenær. Þvílík himnasending sem það er þegar ég má helst ekki vera að því að blogga:)

Góðar hugmyndir til að hressa við veggi heimilisins, en svona útliti má ná fram með málningu og teipi, og að sjálfsögðu dass af þolinmæði.

TTI_84_PROPORTION Silent Shift RS2-Silent Shift

Dálítið öðruvísi en skemmtilega öðruvísi! Munið þið eftir þáttunum “Queer eye for the straight guy”? Mikið elskaði ég þá þætti, en þeir voru einmitt mjög duglegir að teipa mikið á veggina til að ná fram allskyns skemmtilegum mynstrum. Æj ég sakna þessara þátta smá:)

Svo tvær af barnaherbergjum, þær urðu að fá að fylgja með…

90ea1d4d82ef3299b7f9aa66a409831b 335f907d988f48ccd3a9dbc25171ce38

Svo er ég aaaalveg að fara að kynna frábæra gestabloggarann minn sem tekur hér yfir innan skamms!

x Svana

RÓSETTUR & SKRAUTLISTAR

Fyrir heimiliðKlassík

Ef það er eitthvað trend sem ég myndi vilja sjá taka yfir öll hönnunartímarit og heimili þá væru það rósettur og skrautlistar í loftum. Þó það skuli varla kallast trend því það er fátt jafn klassískt við heimili og einmitt þetta. Ég fell alveg kylliflöt þegar ég heimsæki heimili þar sem rósetta er í loftum, hvað þá fleiri en ein, svo fallegar eru þær. Ég luma á einni slíkri ofan í skúffu sem ég hef lengi verið á leiðinni að smella upp í loft, það sem ég held að stofan mín yrði falleg.b9cf88eb1e7cf356b33342cebbcd2a0d

Horfið núna á þessa mynd hér að ofan og ímyndið ykkur að það vanti rósettuna og skrautlistana? Ekki alveg jafn spennandi þá ekki satt.

5cc34c3b3dcdc307f50354695da84fb3379bd06a46968bf9d399596543d7aa28 1c913c72c2daacd9742847eee1c9af3e567ab7297d1dfcf09914c47e0fe8428971c97faa028f6a7e1c0cf09e36f112ef 6e559f81414112157c2a2fb7e6faf7ad6f1d7aed9431d9e8ad7588b642fd299cfb42092924393500840688e8b9364bb3e399f9cf595e2b0cd0b7bae480f6dfb9922dd74334d7003d1805c04fb5abfa01-123ea2a959b065f44c0bb09e8bd33c433

Þvílík fegurð ♡

Það er varla hægt að fegra heimilið sitt á einfaldari máta en að smella einni rósettu í stofuloftið. Ég prufaði að fletta ‘rósettur’ upp á Google og það virðast fjölmörg fyrirtæki selja slíkt hér heima. Mikið vona ég að þetta verði aftur vinsælt því það var það fyrir einhverjum árum síðan.

En smá af mér… ég hef ekki náð að vera jafn virk hér og ég hefði viljað. Ég er nefnilega að vinna að nokkrum verkefnum í tengslum við HönnunarMars sem hefst núna í vikunni, en ég mun nefnilega missa af hátíðinni í ár vegna utanlandsferðar og er því að vinna mikið fram í tímann. Hinsvegar þá ætlar ein alveg frábær að spreyta sig sem bloggari á Svart á hvítu á meðan að ég verð í burtu. Ég lofaði henni að hún mætti hafa frjálsar hendur en eitthvað verður a.m.k. fjallað um sýningar HönnunarMars, sem er alveg frábært.

x Svana

EINSTÖK VEFVERSLUN

BúðirFyrir heimiliðVerslað

Rockett st. George er afskaplega falleg bresk vefverslun sem ég skoða af og til. Vöruúrvalið er ólíkt því sem við erum vön sem er afskaplega hressandi ef svo má segja, framandi og öðruvísi hlutir og aðrir draumkenndir eins t.d. og uppstoppaður einhyrningur á vegg. Ég hef verið að skoða margar vefverslanir síðustu daga þar sem að ég er að fara erlendis í næstu viku og finnst tilvalið að nýta tækifærið að panta nokkra hluti og fá að sleppa við tollinn og oft háann sendingarkostnað til Íslands. Rockett st. George hefur margoft verið kosin besta vefverslunin af ýmsum tímaritum og vefsíðum, svo þið ættuð að kynna ykkur þessa síðu, þarna er nefnilega fullt af fjársjóðum að finna.

Hvernig væri svo að skella sér á eins og einn einhyrning fyrir stofuna?

x Svana

MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ TAKA YFIR SVART Á HVÍTU BLOGGIÐ?

Íslensk hönnun

*UPPFÆRT* Búið er að finna rétta aðilann í málið, ég segji ykkur betur frá því innan skamms;)

Hefur þú mikinn áhuga á hönnun? Má bjóða þér að taka yfir Svart á hvítu bloggið yfir HönnunarMars?

Það vill svo óheppilega til að ég kem til með að missa af HönnunarMars í ár og ætla ég því að bjóða einhverjum sem hefur áhuga á hönnun að taka yfir bloggið og fjalla um HönnunarMars fyrir Trendnet! Að sjálfsögðu fylgir með miði á Design Talks sem er ómissandi fyrirlestrardagur sem markar upphaf hátíðarinnar. Þú mátt vera hver sem er; hönnuður, hönnunarnemi eða einfaldlega mikill hönnunaraðdáandi en eina skilyrðið er að hafa áhuga á að njóta þeirra sýninga og viðburða sem HönnunarMars hefur upp á að bjóða í ár, og skrifa svo um þær eða annað sem þér liggur á hjarta hér á Svart á hvítu.

hönnunarmars

Mynd_1604798

Svo er þetta jafnvel góð leið til að koma þér á framfæri;)

Sendu mér línu á svartahvitu@trendnet.is ef þú hefur áhuga!

x Svana

FLOTTAR VEGGHILLUR

Fyrir heimiliðHugmyndir

Ég er dálítið skotin í svona kassahillum eins og sjá má hér að neðan og er að íhuga að fá smiðinn minn til að smíða nokkrar inní herbergið hans Bjarts. Þetta eru dálítið skemmtilega hillur til að leika sér með, bæði með uppsetningu en svo er einnig hægt að mála bakið eða setja veggfóður og hressa þær þannig rækilega við. Þær geta því hentað í raun fyrir hvaða rými sem er, væru flottar undir ilmvötn eða upprúlluð handklæði inná baðherbergi, uppáhaldshlutina inni í stofu eða bækur og dót í barnaherberginu. Er ég ekki að selja ykkur þessa hugmynd vel?

Ég hef margoft rekist á allskyns útgáfur af svona hillum í mörgum verslunum, fer svosem allt bara eftir hvaða gæðum og útliti þú ert á eftir. Gallinn þó við það að búa með húsgagnasmið er að hann er eflaust svaka duglegur í vinnunni sinni en ég þarf hinsvegar að panta hluti helst með ársfyrirvara ef ég vil láta smíða eitthvað fyrir mig. En mér heyrist að það sé þannig á fleiri bæjum, t.d. að kokkarnir nenni lítið að elda heima hjá sér;)

kubus-kastjesvakkenkastjes-muur Furniture shoot kubus-muur kubus-als-plankje muur-kubussen muur-kubus-kistjes kistjes-muur kubus-kastjes-muur

Ég held reyndar að það sé svo komið nóg af hillupælingum í bili!

x Svana

HRÍM OPNAR Í KRINGLUNNI

Búðir

Það er eflaust eftir að gleðja mörg hönnunarhjörtu að heyra það að Hrím opni nýja verslun á næstu dögum í Kringlunni, nánar tiltekið þann 12.mars sem er einnig dagurinn sem HönnunarMars hefst. Ég heyrði aðeins í Tinnu sem á ótrúlega stuttum tíma er að opna sína þriðju verslun í Reykjavík frá árinu 2012, en fjórðu verslunina sína ef með er talin Hrím sem hóf upphaflega rekstur sinn á Akureyri vorið 2010.

“Við erum mjög spennt fyrir því að opna í Kringlunni en í nýju búðinni verður blanda af því besta úr Hrím búðunum okkar á Laugaveginum. Það hefur gengið mjög vel hjá okkur þannig að við ákváðum að taka þetta skref og stækka við okkur. Við höfum alltaf lagt mikið uppúr hönnun verslana okkar og jákvæðri upplifun viðskiptavina okkar og við vonum innlega að okkur verði vel tekið, við lítum að minnsta kosti svo á að það sé mikið tækifæri fyrir Hrím að opna verslun í Kringlunni. Við flytjum inn nær allar okkar vörur sjálf og flestar þeirra fást ekki í Kringlunni eins og er. Margar þessara vara eru mjög vinsælar, bæði á Laugaveginum en einnig í  vefverslun okkar, www.hrim.is. Við höfum því mikla trú á þessum vörumerkjum okkar og teljum að þau muni standa sig mjög vel, þetta eru merki eins og Ferm Living, Kahler, Studio Arhoj, Chasseur og svona mætti lengi telja. Við munum svo fljótlega kynna ný merki sem munu fást í nýrri verslun okkar í Kringlunni.”

Frábærar fréttir, ég tók saman nokkra hluti sem heilla mig að þessu sinni frá Hrím:)

Nýja Hrím verslunin mun verða staðsett á móti Zöru og Boss búðinni þar sem útivistarverslunin Zo-on var áður og stefna á að opna fimmtudaginn 12. mars nk.

Það er skemmtilegur HönnunarMars framundan!

HILLUPÆLINGAR & FLEIRA

EldhúsHeimiliPersónulegt

Eins og ég nefndi í gær þá ætlaði ég að taka mynd í dag af nýju uppröðuninni í eldhúshillunni, og ég er afar stolt af mér að hafa staðið við það;) Mig hafði langað í smá tíma að draga diskana og skálar uppúr skúffum og raða á hilluna fyrir ofan vaskinn í staðinn. Bæði er það mjög praktískt að geyma þá fyrir ofan vaskinn en ég var einnig alltaf í stökustu vandræðum með þessa hillu og það að raða smekklega á hana og hún var orðin svo ofhlaðin. Það létti ekkert smá mikið á eldhúsinu að hafa skipt þessu út en það spilar svosem inní að þetta er voða hvítt og látlaust á að horfa (diskarnir og skálarnar eru samt með crazy mynstri… ljónum og blómum:)

20150303_153349

Hér má sjá hvernig eldhúsið tengist við stofuna, þarna má líka sjá í fyrsta sinn (svo ég muni) stól sem Andrés vann í skemmtilegum leik fyrir jólin, hann er frá Willamia.

hilla

 Og svo er það hillan í heild sinni, tada! Ps. þetta fagurbláa viskastykki er það besta sem til er og ég fæ ekki greitt fyrir að segja ykkur það. Það er frá Skjalm P frá vefversluninni Snúrunni, ég er hætt að nenna að nota neitt annað í dag.

Ég hef verið að vandræðast lengi vel með það hvort ég eigi að birta myndir oft héðan heima og hvar línan liggi í því að vera of persónuleg. Ég t.d. hefði venjulega ekki birt færslu um að ég hafi verið að raða í hilluna hér heima, en ég bara verð að trúa því að það sé aðeins fólk að fylgjast með blogginu sem hefur áhuga á þessu eins og ég, og sé ekki hér statt til að gagnrýna. En svo enn og aftur að áramótaheitunum mínum (vonandi eru þið líka að standa við ykkar), þá ætlaði ég mér að hætta þessari miklu hræðslu sem ég hef verið haldin við gagnrýni sem getur valdið mikilli streitu. Núna er ég hálfnuð með námskeiðið mitt á Dale Carnegie og held barasta að ég sé farin að finna mikinn mun. Bíðið bara, bráðlega fer ég að sýna ykkur ofan í skúffurnar mínar….

4eb501f20bdaef10227591b41f394f4a 93c5fb1eade2602d1e08b21558eae369-620x620

x Svana

Á STRING HILLUNNI: HUGMYNDIR

EldhúsFyrir heimiliðHönnun

Í kvöld er ég að kljást við mjög mikið fyrstaheimsvandamál en mér tekst ekki að raða nægilega vel í String hilluna mína, nei ég er sko ekki að grínast í ykkur. Ég tæmdi hana nefnilega fyrr í kvöld og kom öllum glösunum mínum fyrir í hillu sem situr fyrir ofan vaskinn, og það kom mjög vel út. -Þarf að taka mynd á morgun og sýna ykkur. En núna er String hillan tómleg og nokkuð einmanna. Hér eru nokkrar hugmyndir í boði Pinterest, það eru sem betur fer fleiri en ég sem hafa gaman af því að raða í og úr þessari blessuðu hillu, það er nefnilega orðið sérlegt áhugamál mitt.

d426ee139ac19aa801455f0e2059a1df-1string-pocket-in-white-135253794518daac4f878e9d806afaea2 f1fc8ab90db95f1f5919fb0b97ed520a c2f170117887c22ed6f2e9b9cfa8abf5 806b902d84aab9c8e8310f4358884fdb a12292244252545096b1f9a015b2045d 66da87305954f6c6fe6af57523e199ed 3d2f5c33cb93716e5d587ccbd46cf162 0cee7cdc596667d637ad721194bba231-1 105e10c6bf8d44959cdd5bcc7ac651d6 fotoc944e6295b47f679d9f5f5b91048746c

Kannski á einhver ykkar við sama vandamál að stríða og er til í smá hilluinnblástur í kvöld;)

x Svana

FERMINGARHUGMYNDIR

DIYHugmyndirPersónulegt

Fermingarblað Fréttablaðsins fylgdi með blaðinu í dag og ég var fengin til að sýna nokkrar hugmyndir. Ég sjálf kem ekki til með að ferma fyrr en eftir 14 ár og hef engin barnaafmæli haldið ennþá svo þetta var bara ágætis æfing fyrir það sem koma skal:) Ég tók sjálf nokkrar myndir til að birta hér til að fleiri geti notið hugmyndanna.

IMG_2418

Ég vildi halda þessu í mínum stíl og því eru helstu litirnir svartur og hvítur en svo gera doppur bara allt svo mikið skemmtilegra og því dró ég upp bleika doppótta dúkinn minn.
Fermingarveislur og aðrar stærri veislur eiga það til að vera of hefðbundnar fyrir minn smekk og því til að keyra stuðið upp í þessari veislu þá bætti ég við ljósaseríu og partýveifu ásamt því að föndra pappírsdúska úr kreppappír sem ég hengdi upp á band í gluggann.

IMG_2425

Dásamlega systir mín skreytti rósakökuna fyrir mig, mér fannst vanta einhvern lit á veisluborðið:)

IMG_2420

Það er skemmtileg hugmynd að nota stafabolla frá Design Letter og mynda nafn fermingarbarnsins eða nota önnur skemmtileg orð og hafa á veisluborðinu.

IMG_2424

Lakkrísinn frá Lakrids by Johan Bulow var að sjálfsögðu ómissandi á borðið, bæði eru kúlurnar flottar sem borðskraut en líka mjög góðar.

IMG_2421

Mér finnst mjög skemmtileg hugmynd að merkja Coke glerflöskur til að setja persónulegan svip á veisluna, “Njóttu Coke með Bjarti” stendur á mínum, en það eru flöskur sem ég átti til í afgang frá skírnarveislunni hans Bjarts en miðana útbjó ég með Photoshop. Doppóttu servíetturnar eru eftir Ingibjörgu Hönnu og fást t.d. í Epal.

IMG_2427

Bleik og doppótt pappírsrör.

IMG_2419

Fínu pappírsdúskanir sem mig hefur lengi langað til að föndra eftir að hafa pinnað þá nokkrum sinnum á Pinterest. Þeir eru þó tímafrekari en ég hafði gert ráð fyrir og ég verð nú að gefa móðir minni credit fyrir að hafa setið hjá mér heilt kvöld og hjálpað mér að föndra:)

Vinir mínir í Epal voru svo elskulegir að lána mér Design Letter bollana, því eðlilega á ég ekki bollasett sem stafar ‘ferming’! Ljósaseríuna keypti ég upphaflega í Bauhaus en þær eru uppseldar þar og hafa verið lengi, en ég hef séð samskonar á Aliexpress á góðu verði. Pappírskúlurnar á gólfinu fékk ég fyrir nokkru síðan í pappírsdeildinni í Ikea en það er alveg hrikalega skemmtileg deild ef hún hefur farið framhjá ykkur!

Vonandi gefur þetta einhverjum ykkar góðar hugmyndir.

Skemmtilegt frá að segja að ég sagði upphaflega nei takk við þessari bón að skreyta fermingarborð. En eitt af áramótaheitunum mínum sem ég hef sagt ykkur frá áður var t.d. að segja oftar já við tækifærum og hætta þessum sviðsskrekk og feimni. Því hafði ég samband við blaðakonuna aftur og ákvað að skella mér í þetta, og hafði svo bara nokkuð gaman af:)

x Svana