fbpx

SCOUT LÍFIÐ

DANMÖRKPERSONALWORK

Lukkan hefur leikið ágætlega við mig í vinnunni minni. Ég vinn meðal annars sem módel scout og í því felst að fara á ýmsa staði og finna súpermódel framtíðarinnar.

Ég hef oft fengið að vita og gagnrýni fyrir vinnuna mína, það að ég finni fólk útfrá fegurð, er dómharður, segi að einhver sé of ljót eða of feit til að vera módel. Þannig er ekki málið, ég er femínisti, styð allar aðrar réttindarbaráttur heilshugar. Ég er hreinlega að finna fólk til að passa í form. Þetta væri eins og að finna rétta leikarana í réttu kvikmyndina myndina, eða fagna einstakleika einstaklings, og embreisa þá eins mikið og ég get. Þetta eru ekki bara sætu vinsælu stelpurnar, eða jockinn í skólanum. Þetta eru til dæmis þessar háu vandræðalegu stelpur, sem kannski fá ekki athygli frá strákunum því hún er hærri en þeir, eða strákurinn sem var strítt fyrir stórt frekjuskarð eða stelpan sem var með dúmbó eyrun. Hin sem ekki í þetta hlutverk sem ég er að leita í, eru aldrei síðari en þau sem ég get scouta, og þeirra einstakleikar verða teknir í fullkomið gildi í öðrum bransa, á annan hátt.

Ég scoutaði fyrir ekki svo löngu einstaklegan strák. Hann var vandræðalegur, fannst óþæginlegt að horfa í augun á mér, hann stamaði smá, varð stressaður og pínu vandræðalegur í samskiptum. Hann er rauðhærður, með mikið af freknum og hafði verið strítt í skóla útaf því. Ég fann hann í Føtex að raða kartöflum uppí hillu, en hann vann í grænmetinu. Hann fékk samning hjá Elite Models og vakti strax athygli kúnna. Ég hitti hann svo seinna eftir að hann fór á samning, og hann sagði mér glaður að hann er loksins farinn að fá athygli frá stelpum. Á föstudaginn síðastliðinn fékk hann frí í skólanum, flaug til Milanó í boði Prada og BÓKAÐI ÞAÐ VERKEFNIÐ.

Ég hef scoutað einstakan strák með skarð í vör, en skarðið var það sem vakti áhuga kúnna.

Ég scoutaði um daginn gullfallega stelpu sem er munaðarleysingi, en fyrir ekki svo löngu fór ég í heimsókn til hennar á Munaðarleysingjaheimilið og hitti yndislegu konuna sem passar uppá hana.

Ég er þakklátur fyrir starfið mitt, þetta er meira gefandi en kannski fólk gerir sér grein fyrir.

scout1

Ég er með vinnu instagram, þar sem ég set inn myndir á öllum mínum scouting túrum.

scout2 scout3 scout4 scout5

 

Þessi tildæmis nældi sér í eitt stykki samning.

Þetta eru aðeins myndir frá einum túr, getið fundið @elitescoutcph instagrammið mitt þar sem allt kemur inn live. Skemmtilegt x

HVAÐ NOTA ÉG Í ANDLITIÐ: SHISEIDO

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Úlfar Viktor

    27. May 2014

    OMG! Þessi með krullurnar og derhúfuna er klárlega eitthvað sem hægt er að vinna með.