fbpx

Mood Make-Up School

Í fyrra hóf ég nám í förðunarskólanum Mood Make-Up School. Ég fór í námið ótrúlega skelkaður þar sem ég hafði aldrei haft reynslu á förðun (ókei jú, þegar ég var goth ..). Mér hafði aldrei grunað að ég mundi skemmta mér svona vel í námi. Með mér í hóp voru skrautlegustu og frábærustu stelpur sem hægt er að hugsa sér. Kennararnir eru stórkostlegir og það kom aldrei dagur sem var leiðinlegt.
Ég lærði svo ótrúlega mikið og í dag hef ég unnið mikið við þetta og mér finnst svo ótrúlega gaman að kunna þetta allt saman.

Í MOOD er bara kennt á MAC vörur og nemendur fá brilliant tösku með öllu sem þarf. Vandræðalegt en satt þá hef ég ekki bætt neitt við kittið mitt síðan ég útskrifaðist nema burstahreinsi og púður. Virkilega gott stöff.

Eftir að ég útskrifaðist þá var ég ráðinn að mynda lokaprófin hjá næstu hópum.
Hér má sjá nokkrarrr;

mood1

mood2

mood3

mood4

mood5

mood6

Fyrir ykkur stelpur eða stráka sem mögulega hafið áhuga á því að verða make-up artistar þá mæli ég með MOOD Make-Up School hhhhiklaust!! Þetta er of skemmtilegt.

 

MEISTARAMÁNUÐURINN MINN.

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elísabet Gunn

    5. October 2012

    Fallegar myndir af fallegum stúlkum. Þú ert svo klár!

  2. Kristín Erla

    19. October 2012

    SVO SATT! og gaman að sjá fleiri myndir úr skólanum.. geðveikar!