fbpx

LITLU NEI NEI-IN Í KARLASTÍLNUM

MEN'S STYLESTYLETHOUGHTS

 

Það er einhver hluti af mér sem hefur á tilfinningunni að ég mun fá “fokkjú” á mailið mitt eftir þessa bloggfærslu. Ég ákvað að GÓÐFÚSLEGA skrifa niður það sem ekki þykir kannski neitt svakalega móðins eða kúl þegar kemur að stíl.

Ég ætlaði að gera þetta blogg, enginn vafi. Ég ætla þó ekki að ljúga, ég vissi ekki hvað ég ætti að skýra þessa færslu. “Þetta er ljótt” “Ekki gera svona” “Svona ertu ekki stælis” – nei, því það bíður hættunni heim.

Einu sinni enn, góðfúslega, MEÐ KÆRLEIK, þá ætla ég að fara yfir þau atriði sem er lítil og sæt “nei nei” að mínu mati.

Don’t go crazy on me y’all.
nono1 nono2

Langir V-necks, var einu sinni kúl, en svo dó það, er enn dautt, mjög dautt, rotið.

2012 Teen Choice Awards - Backstage & Audience nono4 nono4

Persónulega þykir mér ekkert – EKKERT verra að sjá fólk með sólgleraugu inni, eða þar sem sólin ekki skín, eða sólgleraugu á kvöldin. Plís kæru lesendur, aldrei gera það. Veriði með sólgleraugu þegar það er sól.

nono6 Gerard Butler leaves his hotel in Miami nonono2

Cargo buxur, þó svo að þú ert í fríi – kannski á Costa Del Sol þar sem enginn þekkir ykkur, þá eru cargo buxur bara ekki næs. Ekki kaupa eða vera í cargo buxum.

nonono3

Lógó útum allt – Ralph Lauren er gott dæmi. Það er of mikið –

nonono4 nonono5

Sokkar yfir buxur – say no more. Ég var mikið í þessu á tímabili. Þetta er slæmt slæmt slæmt.

Earns Abercrombie

Abercrombie & Fitch, aldrei kúl – alltaf slæmt.

MEÐ JÁKVÆÐNI, KÆRLEIK OG ÁNÆGJU.

Helgi (sem er góðfúslega að gefa ráð)

 

BREAKFAST IN BED: KÆRÓ 25 ÁRA

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Anna

    1. June 2014

    Hæ Helgi

    Núna upp á síðkastið hefur kærastinn minn verið að leita sér að cargo stuttbuxum fyrir sumarið (GUBB)….ástæðan segir hann að hann hafi ekki fundið neinar aðrar stuttbuxur sem eru með almennilegum vösum fyrir símann, veskið og lyklana.

    Ertu með einhver ráð við þessari dilemmu svo hann þurfi ekki að kaupa svona ósmekklegar stuttbuxur? :)

    • Helgi Ómars

      1. June 2014

      Hæ Anna!! :)

      Ég mundi hreinlega bara mæla með að kaupa sér buxur sem eru þæginlegar með vasaplássi, afterall – þá eru þetta bara buxur sem eru stuttar ;)

      Eigðu góðan sunnudag :)

  2. kolbrun bjork

    1. June 2014

    Lol

  3. Alexandra

    1. June 2014

    cargo stuttbuxur og hvítir sokkar eru eitt það mesta ógeð sem ég veit um.

  4. Anton Ö. Rúnarsson

    2. June 2014

    Sama hvað ég gerði þá komst ég aldrei inní sokka yfir buxur trendið og ég þakka guði fyrir það ^_^