fbpx

GLEÐILEGA PÁSKA!

ÍSLAND

Gleðilega páska kæru vinir!

Ég vaknaði klukkan 07:20 í nokkuð miklum bömmer. Ég er á Seyðisfirði yfir hátíðarnar og vinahópurinn mikli hittist í gær til að fagna, dansa og hafa gaman, og ég sofnaði yfir mynd með Söndru Bullock í sófanum og rankaði við mér seinna um nóttina.

ALLAVEGA, ég er eins ánægður með þetta og ég er óánægður, því í fyrsta skipti, á minni 24. ára lífsleið hef ég ekki dottið í sólarhringsviðsnúnings pyttinn. Ég hef byrjað alla mína morgna á skokki eða Crossfit æfingu .. jú nema daginn í dag, en ástæðan er sú að hér er allt á kafi í snjó og heiðin lokuð. SVO! Húrra á mig, þetta er mér nokkuð mikill sigur.

Njótiði páskana vinir.

Knús frá mér ..

Processed with VSCOcam with a9 preset

KLUKK Á MIG: EF ÉG VÆRI AÐ FERMAST MUNDI ÉG ÓSKA MÉR ..

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

    • Helgi Ómars

      4. April 2016

      Gleðilega páska til þín elsku besta Elísabet! xx