fbpx

GÆRKVÖLDIÐ.

MATURNEW INPERSONAL

Ég er farinn að eyða öllum mínum helgum í algjört “hygge” – ég elda mikið, tek til, fer á æfingar.

Sem mér finnst eiginlega frábært, ég get hreinlega ekki sagt að ég sakni þess að vera þunnur.

Í gær var enginn undantekning, ég tók íbúðina í gegn & eldaði Thailensk nautakjötssalat insperað af Pöttru! Ég komst ekki í öll hráefnin en ég gerði mitt besta, kjötið var fullkomið, dressingin var snilld & mintan var snilld og salatið var snilld. Ég mæli eindregið með því! Ekkert smá gúrmey og kærastinn trylltist úr mataránægju. Takk fyrir mig Pattra!

salat

Svo eins og hann á gjarnan til, kom maðurinn færandi hendi í gærkvöldi. Ég er heppinn maður :-)

acne2

acne

Glænýr silkimjúkur risastór og hreinlega fullkominn haust trefill frá ACNE! Ekkert nema fullkomnun :) Hlakka strax til kuldans!

Eigiði góðan sunnudag kæru vinir x

KRUKKA DAGSINS.

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Pattra's

    15. September 2013

    Sjúklega ánægð með þig, er þetta salat ekki komið til þess að vera?
    1x í viku hér á bæ! :)