fbpx

Pattra S.

THAI BEEF SALAD-UPPSKRIFT

a la Pattra

Hér kemur hið vikulega uppskriftarhorn Pöttru. Að þessu sinni af uppáhalds salati okkar hjóna..

Í salatinu : (salatið er ekki alltaf endilega eins hjá mér, eins og ég segi þá nota ég ekki uppskrift.)

  • Keypti tilbúið salatmix –KínakálHvítkál Gulrætur (bætti við auka gulrótum)
  • Mynta og Kóríander
  • Vorlaukur og Rauðlaukur
  • Gúrka
  • Jarðhnetur
  • Ég mæli einning með baunaspírum sem var ekki til í búðinni að þessu sinni

Grænmetið skorið niður og komið fyrir í skál síðan strái ég jarðhnetunum yfir.

Dressingin :

  • Soja & Fiskisósa
  • Hoisinsósa
  • Sesamolía
  • Chili
  • Lime
  • Hvítvíns edik
  • Hvítlauksduft, þurrkað sítrónugras og ramsløg(ramsons)

 Ég blanda í skál ca 3 matskeiðar af hoisinsósu / 2 matskeiðar af sojasósu, fiskisósu og hvítvíns ediki / heil lime / chili eftir smekk svo nokkur kvörn af hvítlauksdufti og þurrkuðu jurtunum. Þessu er blandað vel saman og að lokum set ég dass af kóríander út í. Ég dressa svo salatið duglega en hef svo afganginn af dressingunni með aukalega.

Steikurnar kryddaðar og steiktar í pönnu

Steikurnar skornar í bita og salatið borið fram!

Svona lítur þetta síðan út eftir nokkrar mínutur, vúps! OG Já -við slátruðum þessu bara tvö. Hvernig líst ykkur á ?

Þetta salat slær alltaf í gegn í hvert einasta skipti, orð að sönnu.

PATTRA

MOVING ON

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Guðný

    10. September 2013

    mmm en girnilegt, maður verður að prófa þessa!
    Ég er með eina spurningu :) hvaða myndavél notaru, þ.e. þegar þú notar ekki iphoneinn ;)

    – GV

    • Pattra's

      10. September 2013

      Myndavélin mín heitir NEX-C3 frá Sony.
      Ég þarf virkilega að splæsa í myndavélablogg, löngu kominn tími til en gleymi því alltaf! :)

      • Pattra's

        10. September 2013

        Mæli annars með salatinu, þú getur varla hætt að spisa!!

  2. Helgi Omars

    11. September 2013

    NNNAAAMMMIIIII!!!! Ég ætla sko að prófa, ohmygod!

  3. Kristjana

    11. September 2013

    Girnilegt! Hvað er þetta ljósa í skálinni sem borið er með?

    • Pattra's

      11. September 2013

      Bara simple hrísgrjónanúðlur með smávegis af ostrusósu :)

  4. Þóra Hrund

    11. September 2013

    Þetta er geðveikt, öll uppáhalds hráefnin mín eru í þessum rétti! Þetta verður eldað sem allra fyrst!

  5. Halla

    11. September 2013

    Nammi namm…….