fbpx

66°NORÐUR BREAKFAST – F/W 18-19

66°NorðurDANMÖRKSTYLE

Okkur Trendneturum var boðið í morgunmat hjá 66°Norður hér í Kaupmannahöfn! Eins og sannir Íslendingar vorum við að mæta á hinum ýmsu tímum! Þegar ég kom var Sigríður mætt og byrjuð að skoða.

Ég hafði ömurlega lítinn tíma, en í dag er síðasti vinnudagurinn minn fyrir Tæland og það var ansi mikið sem þurfti að klára áður en ég færi í frí svo ég hafði lítinn sem engan tíma þennan dag. Ég að sjálfssögðu mætti og var búinn að hlakka til að hitta snillingana á bakvið merkið hérna í Kaupmannahöfn. Ég hefði auðveldlega getað eytt heilum degi þarna, en ég bíð þá bara með það þegar næsta sumarlínan dettur inn.

Alveg hreint hriiiikalega hress með Nocco kaffið sitt.

En ekki hvað ..

Súrdeigsbollur voru líka á boðstólnum, sem ég borðaði alltof mikið af.

Djjjjjöööfull var gaman að fara í gegnum þetta –

Úlpa úlpanna kemur í nýjum litum, vínrauðum, kóngabláum og þessum ruglaða græna lit. Wishlist merci.

Mér fannst þessi mjög skemmtileg, en þessi er glæný og maður hefur ekki séð svona peysur frá þeim áður.

Þessi er einnig glæný og kemur í hinum ýmsu litum. Þessi verður á mjög viðráðanlegu verði svo örvæntið ekki.

Það er svona þegar maður hefur svona gríðarlega lítinn tíma. Ég gekk þó frá eftir mig í lokin. Minnir mig?

Takk fyrir mig 66°Norður!! Þið eruð veisla.

Insta: helgiomarsson
Snap: helgiomars

ÁSTÆÐAN FYRIR AÐ ÉG VAR Í MILANO -

Skrifa Innlegg