fbpx

TREFILL X 2

SHOP

974726_10152511110097568_245607688_n

 Haustið hefur loksins ákveðið að staldra lengur við, örugglega komið til að vera í þetta skiptið. Við fögnum því með hlýrri klæðum. Ég var reyndar löngu komin í þennan gír sem fylgir rútínunni eftir sumarið og síðustu vikur hef ég verið vafin inn í köflótta trefilinn minn/teppið mitt með heitt kaffi við hönd – núna verður sá gír tekinn uppá næsta level. Meira leyfilegt þegar hitamælirinn er hættur að sýna tvær tölur.

 

 

10748706_10152511110162568_1379303402_n

Jónsson heimsótti klakann um daginn án úlpu eða almennt nægilega hlýjum fatnaði fyrir mínus gráðurnar sem hann fékk (ekki sniðugt það).  Fjárfest var í þessum fína trefli sem er úr 100% ull en samt mjúkur og góður. Ég hef fengið hann ansi oft lánaðann frá því að maðurinn lenti aftur í heimalandinu – hans er mitt og mitt er hans … í þau fáu skipti sem það gengur upp.

Frá: Selected Homme

10583240_10152511110367568_753702710_n
Í síðustu heimsókn minni til Íslands var þessi utan um hálsinn á mér næstum því uppá dag. En ég fékk mikið af fyrirspurnum um hann og seldi hann eiginlega utan af mér í orðsins fyllstu. Góð kaup (!) miðað við hvað hann hefur verið notaður mikið.

Frá: Lindex

Góða helgi – enn eina ferðina. Þessi verður sérstaklega góð á Íslandi Góða skemmtun!

xx,-EG-.

FALLEGT HAUST HJÁ FARMERS MARKET

Skrifa Innlegg