fbpx

SHOP: PALLÍETTA

SHOP

Það er algjör misskilningur að það sé einungis hægt að klæðast pallíettu við fínni tilefni. Þó hún setji auðvitað punktinn yfir i-ið þegar þannig ber undir. Ég nældi mér í nýja glitrandi flík sem ég sá fyrir mér mikið notagildi í yfir hátíðirnar sem bráðum banka uppá. Já, dagatalið segir okkur satt þó ótrúlegt megi virðast.

Í kauppælingum mínum inni í versluninni komst ég samt að því að ég fílaði hana ekki síður vel við haustlegt dressið þann daginn, JPG X LINDEX rúllukragapeysa & StanSmith Adidas skór. Svona gæti nýji jakkinn vel virkað. Er það ekki rétt hjá mér?
   
sel21233359_402038016613614_4457934598298536895_n-620x620Maður getur verið efins í pallíettukaupum … en notagildið getur verið meira en maður heldur í fyrstu.

Frá: Selected

xx,-EG-.

SVÖL SOLANGE Á BRÚÐKAUPSDAGINN

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hildur Ragnarsdóttir

    19. November 2014

    mjög viðeigandi við bloggið mitt :þ

    mér finnst palíettur allaf fallegar !

    xx