Danska tískuvörumerkið Ganni hefur gert það gott síðustu árin eða frá því að þeir hófu störf árið 2000. Merkið hefur ekki fengist í sölu á Íslandi þangað til nú, en Geysir á Skólavörðustíg hafa bætt við vöruúrval sitt með þessum hætti. Af Facebook síðu þeirra að dæma eru þau þessa dagana að taka uppúr kössum fyrstu sendingu í hús. Því ber að fagna …. og deila með ykkur.
Haustlínan 2014 einkennir einstakar litríkar flíkur á móti meiri klassík sem lengur er hægt að nýta – rúllukragar og rómantík – blanda sem ég heillast af.
Einstaklega fallegt ….. og margt strax komið á óskalista.
Ég á enga flík frá merkinu (ennþá) en margt hér að ofan kallar nafnið mitt. Ætli ég kíki ekki í heimsókn á Skólavörðustíginn næst þegar ég á leið hjá. Flott viðbót í íslensku flóruna. Örugglega einhverjar sammála mér.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg