Alveg ómeðvitað voru perlur í aðalhlutverki í fylgihlutavali undiritaðrar í síðustu viku. Ég fékk svakalega margar spurningar út í spöngina sem er ástæðan fyrir því að hún fær sér bloggfærslu.
Spöngin var keypt á hlaupum þegar ég sá glitta í hana í búðarglugga á Strikinu. Hún er frá Zöru og fæst líka á Íslandi samkvæmt fylgjanda á IG sem sagði mér það ..
Spangir eru án efa sá fylgihlutur sem ég hef notað mest í sumar og ég er viss um að það fylgi mér áfram út veturinn – svo þægilegt að taka hárið frá augunum á þennan máta …. og líka voða smart ;)
Ég er glöð með þessa tilteknu en það má finna sambærilegar í H&M, Lindex, hjá Andreu (hún er með mjög gott úrval) , Vero Moda og Gallerí 17 á Íslandi … mæli með!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg