Ég var svo heppinn að fá að sýna ykkur nýjustu herferð 66°norður sem hefur ekki enn farið í birtingu annarsstaðar.
.. Trendnet að sjálfsögðu aðeins á undan. :)
Ég er aðdáandi merkisins og væri til í að eiga miklu meira en ég á frá þeim. Einna helst er ég aðdáandi auglýsinganna sem að í hvert skipti er lögð mikil pæling og vinna í sem að skilar sér til viðskiptavinanna, allavega mín. Ég elska hvað þeir gera mikið úr íslenskum uppruna og aðstæðum – fallegur útivistarfatnaður sem að hefur gert það gott erlendis þar sem að þau auglýsa land og þjóð.
Takan fór fram í Mjóafirði á Austurlandi inní 5-6 metra háum snjógöngum (!) , en fyrir þá sem ekki vita þá búa 35 manns í Mjóafirði og snjógöngin eru grafin til að opna veginn til og frá þorpinu. Dásamlegur tökustaður!
Módelin sem að sitja fyrir eru Alexandra og Emil stíliseruð til fyrirmyndar af Elleni Lofts. Ljósmyndarinn er Daníel Freyr Atlason.
Emil hefur verið í síðustu herferðum líka og maður orðinn vanur því að sjá hann í nákvæmlega þessum klæðnaði. Fötin fara honum vel og mér finnst hann smellpassa við ímynd fyrirtækisins – alveg með þetta !
Ég fræddist aðeins um fatnaðinn í heimsókn minni í 66°N í janúar og það sem mér fannst áhugavert var að þeirra markmið er að gera flottan fatnað sem stenst jafnframt erfiðustu aðstæður. Þetta er því í rauninni enginn götuklæðnaður þó hann sé kannski mest notaður þannig. .
Ég valdi mínar uppáhalds myndir úr herferðinni en restina sjáið þið síðar, líklega hér og þar um bæinn.
Íslenskt já takk.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg