Ég átti óvænt deit við minn mann á sólríkum síðasta sunnudegi. Eins og stundum þegar ég set inn myndir á Instagram þá fæ ég fyrirspurnir í framhaldinu um hitt eða þetta. Einhver ykkar forvitnuðust um hálsklútinn? Það er ekki að undra – hann er alveg yndislegur og ný kaup sem ég er virkilega ánægð með. Efnið er fíngert, 100% bómull og liturinn tímalaus. Setur punktinn yfir i-ið á þessum millibilsdögum frá vetri yfir í vorið.
Frá: Zöru
Jónsson bauð uppá göngutúr, pizzu og blóm í tilefni konudagsins. Virkilega huggulegt.
Ég geng T-merkt um götur Kölnar sem er kannski ástæðan fyrir fleiri erlendum lesendum sem hafa heimsótt síðuna uppá síðkastið ;) Merktir taupokar fylgja mér flesta daga – þessi verður auðvitað oftast fyrir valinu.
Fallegur dagur í borginni minni.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg