Við áttum gleðileg jól hér í þýsku koti. Þó það sé leiðinlegt að fá ekki að hitta stórfjölskylduna nema í gegnum tölvuskjáinn á þessum hátíðardögum þá erum við litla fjölskyldan alltaf ánægð með rólegheitin og rómantíkina sem fylgir því að halda uppá jólin á þennan veg.
Peysu- jólakjóllinn var í takt við stemninguna, hlýr og þægilegur. Ég poppaði hann samt sem áður upp með blúndu nærbol og áberandi eyrnalokkum. Eyrnalokkarnir eru nýjir og ég leyndust í uppáhalds skran búðinni minni í Köln. Það er mikilvægt að sjóða eyrnalokka ef þið kaupið þá second hand eins og ég gerði í þetta skiptið.
Varaliturinn var keyptur samdægurs frá Loréal en það er orðið hefð að bera rauðar varir á aðfangadag.
Alba klæddist prinsessukjól frá H&M og Jónsson var í JÖR frá toppi til táar.
Eyrnalokkar: SecondHand
Kjóll: H&M Trend
Sokkabuxur: DIM
Skór: Focus
Varir: Blake’ s PURE RED
Ást og friður yfir hafið.
xx,-EG-.
Fylgstu endilega með:
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg