fbpx

LÍFIÐ

LÍFIÐWORK

Hejsan frá Sverige –
… en ég er hér vegna 60 ára starfsafmælis sænsku vina minna hjá Lindex.
Þegar ég steig út úr vélinni snemma (alltof snemma!) í morgun þá leið mér smá eins og ég væri komin heim. Það er svo mikið öryggi í því að kunna tungumálið og skilja þannig umhverfið sitt. Hér líður mér alltaf vel.

10693586_526704747463741_765839744_n10660711_10152393696862568_766676592_n

Samkvæmt boðskorti sem barst mér í pósti á dögunum þá er afmælisplanið svohljóðandi: Annað kvöld mæti ég á tiltekinn stað þar sem 1500 boðsgestir verða ferjaðir á leynistað (!) sem veislan fer fram. Ótrúlega spennandi, en líka pínu óþægilegt.

Lindex er ekki einungis að fagna starfsaldri sínum heldur fer að styttast í flíkurnar frá samstarfsverkefni þeirra við sjálfan Jean Paul Gaultier detti í búðirnar. Ætli hann verði því ekki á staðnum – býst við því.

photo
SEX & THE CITY fílingur á flottu boðskorti.
_

Það gefur að skilja að næstu daga mun ég skrifa mikið um veru mína hér.  Ég ætla að leyfa ykkur að vera “í beinni” þegar við á.

Meira … fljótlega. Ha det så bra tills vi hörs igen.

xx,-EG-.

LANGAR: HVÍTUR FELDUR

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

Skilaboð 1

  1. Halla

    10. September 2014

    Góða skemmtun……