fbpx

LAUGARDAGSLÚKK

DRESS

Þið sem fylgið mér á Instagram fenguð að vera í beinni á afmælisdaginn minn um helgina. Veðurguðirnir gáfu mér frábæra gjöf og því hélt ég mig í garðinum í góðum félagsskap yfir daginn og naut þess að vera til. Um kvöldið kíktum við aðeins út á lífið, í dýrindis dinner á uppáhalds staðnum mínum hér í Kristianstad. Hann er orðinn enn meira í uppáhaldi eftir að þeir trítuðu mig eins og prinsessu með fríu kampavínsglasi og eftirétt. Ef þið eigið leið hjá hérna megin í Svíþjóð þá er þetta staðurinn til að heimsækja – Borgmästergården.

Lesendur hafa beðið um fleiri dress pósta og því smellti ég nokkrum myndum þetta kvöldið. Ég var því miður ekki með myndavélina og því eru gæðin í samræmi við það.

//

I celebrated my 30 years old birthday this weekend… BIG 30 – can’t believe it.
I had a nice day in sun at home, thanks for the nice weather! In the evening I went out with couple of friends, we went to my favorite place here in Kristianstad, Borgmästergården. I can really recommend it if you are in town, nice design and really good service, they treated me well with champagne and desert on the house for my birthday.

I have been asked for more dress posts so here you have one.

Pósurnar er enn á sínum stað eftir þrítugt .. ;)

Ég er orðin þrítug tveggja barna móðir og það er skrítin, en góð tilfinning. Í sumar ætla ég að fagna enn betur þeim áfanga, á Íslandi með öllum mínum bestu vinum sem ég saknaði sárt á laugardaginn.


Sundbolur/Bodysuit: H&M

Buxur/Jeans: H&M (elska þessar!)

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

FATASALA DAGSINS

Skrifa Innlegg