fbpx

KOMIN Á KINFILL VAGNINN

BETA BYGGIRHOMELÍFIÐ

Í dag er föstudagur sem þýðir þrifdagur hér á bæ .. í lengri tíma hef ég tamið mér það að þrífa vel í lok viku sem skilar sér í glaðari eiginkonu og mömmu inn í helgina. Mér líður best í hreinu húsi en ef ég á að vera alveg hreinskilin við ykkur þá hefur verið erfitt að halda húsi í framkvæmdum í því ástandi sem að ég myndi kjósa alla jafna. En … þetta kemur allt með kalda vatninu, vonandi.

LESIÐ LÍKA: BETA BYGGIR

Í samstarfi við Verma.is langar mig að segja ykkur frá frábærum hreinsivörum sem nýlega fóru í sölu hér á landi. Nýtt heimili, nýtt upphaf í hreingerningavörum? Mér sýnist það miðað við spennuna sem við Gunni höfum yfir nýju fallegu sápunum okkar. Við erum komin á Kinfill vagninn og ég skal segja ykkur hvers vegna –

Kinfill eru hágæða hreingerningarvörur frá Hollandi sem eru góðar fyrir þig, heimilið þitt og jörðina okkar. Um er að ræða hágæða, minimalískar og umhverfisvænar hreingerningarvörur sem koma í litlum áfyllingum sem maður blandar við vatn í endurnýtanlega glerbrúsa. Vörulínan samanstendur af fimm mismunandi vörum sem koma auðvitað allar í fallegum umhverfisvænum og endurvinnanlegum umbúðum. Sjáið þessa fegurð –

 

Við vitum flest að efnin sem notuð eru í fjölmörgum hreingerningarvörum geta verið skaðleg bæði heilsunni okkar og jörðinni. Það sem færri átta sig á er að flestar slíkar vörur eru yfir 90% vatn. Vatn sem er pakkað, dreift, selt og flutt á milli landa. Við það skapast mikill úrgangur.

Kinfill er mjög spennandi vörumerki og vörurnar eru svo einstaklega fallegar að það er algjör óþarfi að fela þær inni í skáp. Ég hlakka til að raða þeim fallega inn í þvottahúsið mitt þegar það verður tilbúið, staðan þar núna er … já, fokhelt með þvottavél. Ekki spennó sjón en skal sýna ykkur fyrir og eftir þar þegar ég næ að gera fínt. Ef áhugi er á slíku.

Takk fyrir mig og gleðilegan þrif föstudag ;)
Meira um málið HÉR

xx,-EG-.

@elgunnars á Instagram

Aðeins um Verma:
Verma.is opnaði í ágúst fyrr á þessu ári. Verslunin leggur áherslu á umhverfisvænar vörur og góða og persónulega þjónustu. Verma keyrir út pantanir daglega á 100% rafmagnsbílum og bjóða uppá gjaldfrjálsa heimsendingu og samdægurs afhendingu á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Allar vörur í verslun eru valdar af kostgæfni og einkennast af gæðum og fallegri hönnun. Kynnist Verma hér: verma.is

BEST OF BESTSELLER

Skrifa Innlegg