fbpx

KLÆÐUM OKKUR EFTIR VEÐRI

photo

Hæ frá 8 gráðunum á Akureyri.
Hér sit ég með heitt kaffi og horfi á vel klædda túrista rölta fram hjá glugganum – í júlí (!) … mér finnst það ekki passa.
Íslenska sumarið leyfir okkur að halda yfirhöfnum og hlýjum flíkum frammi í forstofu allt árið um kring. Þessar fyrir neðan ættu eflaust heima í innblæstri fyrir haustið/veturinn en hérlendis komumst við upp með að klæðast svona 6 júlí – í dag.
Það þarf ekkert endilega að vera ókostur að búa við þetta kaldara veðurfar – myndirnar að neðan sýna innblástur fyrir daga eins og þennan.

0 1 2 3 4 5 6 7 9 10 11 12 13 14 16 67  tumblr_n38uoqFUt31rsuch2o1_500
Klæðum okkur eftir veðri!

xx,-EG-.

 

PÓSTKORT FRÁ VENICE

Skrifa Innlegg