Jæja janúar og allar þínar lægðir. Heitt kakó er ágætt plan fyrir þessa köldu vetrardaga. Í samstarfi við Örnu ætla ég að fá að mæla með einfaldasta og besta heita súkkulaði fyrir ykkur að prufa. Ég nota okkar eina sanna Sjöstrand mjólkurflóara í verkið. Á þessu heimili veljum við alltaf mjólkurvörur án laktósa frá Örnu, þær eru framleiddar úr próteinbættri íslenskri kúamjólk – ferskar og heilnæmar, upprunnar í hreinni íslenskri náttúru. Henta öllum og sérstaklega þeim sem hafa mjólkursykursóþol eða kjósa mataræði án laktósa.
Svona eru skrefin að heitu og góðu súkkulaði úr Nýmjólk, með rjóma –
Mjólk, rjómi, súkkulaðiplötur
Svo ósköp einfalt með þessum ágæta flóara. Það þarf þó að skipta um þeytara og nota þann einfalda.

Mjólk – magnið fer eftir því hversu margir vilja bolla

Bætið súkkulaðinu ofan í og kveikið á græjunni

Voila!

Ég bætti þeyttum rjóma og sykurpúðum ofan í fyrir ískalt mæðgnadeit í garðinum með Ölbu

Þetta snýst aðallega um að njóta.
Einfaldara verður það ekki.
Uppskriftina finnið þið einnig á Instagram í myndformi hér.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg