fbpx

GLAMOUR ICELAND

FASHIONLÍFIÐMAGAZINE

Svona byrjaði dagurinn minn, þetta var útsýnið.

11088675_10152812566157568_1298386264_nÞýska Glamour – Cheerios – orange djús – kaffi = fínasta combo í upphafi dags.


forsida

Það er samt annað sem ég er mun spenntari fyrir þennan fína fimmtudag. En það er blaðið hér að ofan, íslenska Glamour – fyrsta issue!
– Sagði ykkur frá því hér fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Forsíðan hefur verið gefin út og hana prýðir fyrirsætan Caroline Winberg mynduð af Silju Magg – heimsþekkt fyrirsæta í íslensku umhverfi. Gerist ekki betra.
Jör by Guðmundur Jörundsson og Tommy Hilfiger duttu í lukkupottinn en það gleður að sjá blöndu af íslenskri og alþjóðlegri tísku saman í fronti blaðsins.

Ég hef verið svo heppin að fá að fylgjast með bakdyramegin síðustu vikurnar. Fagfólkið sem kemur að gerð blaðsins þarf að fá “hight five” fyrir virkilega vel unnið starf. Ég tryllist úr íslenskum áhuga og get ekki beðið eftir að fá mitt eintak í hendurnar.

– Forsíða –

Ljósmyndari: Silja Magg
Fyrirsæta: Caroline Winberg
Stílisti: Sarah Cobb
Förðun: Fríða María Mac/Blue Lagoon Skincare
Hár: Theodóra Mjöll Skúlason Jack /Label M


Áfram Ísland!
Það verður ekki of oft sagt.

Tryggið ykkur eintak! HÉR getur þú gerst áskrifandi.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

DRESS

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Halla

    26. March 2015

    Gaman að fá fjölbreytni í íslenskri blaðaútgáfu. Vona svo sannarlega að Álfrúni og hennar fólki gengi vel.

  2. Halla

    26. March 2015

    Átti að sjálfsöfðu að standa Álfrúnu…..