fbpx

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

fttt
Ég tók saman frá toppi til táar af því sem finna má í verslunum þessa dagana. Flest að ofan hef ég mátað sjálf en á þó ekki enn í mínum fataskáp.
Margar fagna líklega sailor hattinum sem nú má finna á súper prís í Lindex og aðrir lesendur eru nú þegar búnar að falla fyrir fullkomnu gallabuxunum frá Won Hundred. Kápan er frá Topshop en úr fatalínu Jenner systra. Þríhyrndu eyrnalokkarnir eru fylgihlutur sem ég kann að meta – less is more. Stan Smith skórnir slóu rækilega í gegn í fyrrasumar og ég tók þátt í trendinu – nú getum við keypt dömustærðir í herraverslun Húrra Reykjavik við Hverfisgötu. Kenzo toppurinn gengi einn og sér þennan daginn  – hitinn fór í alvöru upp í 20 gráður (!!) á elsku klakanum okkar í dag. Njótið blíðunnar.

S0000007291363_F_W40_20150603131419
Hattur: Lindex
005-topshop-kendall_592x888-400x600Kápa: Topshop
11427694_1022345391109880_5965518570338692860_n-400x400
Eyrnalokkar: Vila
10932796_4524960_1000
Bolur: Kenzo / Gotta Laugavegi
marilyn-light-blue8468
Buxur: Won Hundred / GK Skólavörðustíg
ADIDAS-STAN-SMITH-2014-3Skór: Stan Smith / Húrra Reykjavik & Kaupfélagið

Það er sá tími ársins þegar styttist í útsölur. Samt sem áður virðist alltaf eitthvað nýtt láta sjá sig á slánum og við (allavega ég) fögnum því.

Happy shopping!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

DRESS

Skrifa Innlegg