fbpx

FIÐRILDABOLUR UN WOMEN

ALMENNTFÓLKSHOP

Fiðrildabolur UN WOMEN er samstarfsverkefni fatahönnuðarins ELLU, ljósmyndarans Sögu Sig, UN Women og Landsbankans. 
Bolurinn fer í sölu næstkomandi föstudag í verslun Ellu í Ingólfsstræti og fer allur ágóði af sölunni óskertur í styrktarsjóð UN WOMEN til afnáms ofbeldis gegn konum.

– Margt smátt gefur eitt stórt. 

1495903_10151726311396213_963179013_o

Saga Sig á heiðurinn af þessari fallegu mynd sem síðan var notuð sem print á Fiðrildabolinn sem gerður er úr lífrænni bómull.


Hún segir um myndina: 

,,Á myndinni er melgresi sem er uppáhaldsjurtin mín en í fyrstu vinnunni minni þegar ég var 11 ára gömul skar ég melgresisfræ til að nota í landígræðslu í Vestur Skaftafellsýslu. Grasið er harðgert og vex hvar sem er, líka við strendur Íslands, þrátt fyrir sandfok, öldugang og aftakaveður. Mér finnst það táknrænt og fallegt. Rætur jurtarinnar sjá til þess að sandurinn fjúki ekki og rof myndist. Þetta náttúrulega tengslanet er hægt að líkja við það net sem UN Women hefur myndað milli Íslands og kvenna annarsstaðar í heiminum. Það er ótrúlega mikilvægt að við stöndum saman því hver einasta rót fléttast saman og myndar stærra net hjálpar, allt þótt smátt sé.”

Ótrúlega fallega og rétt orðað hjá Sögu. Fiðrildaáhrif eru svo falleg áhrif. Ég hlakka til að styrkja þetta frábæra verkefni.

Meira: HÉR

xx,-EG-.

 

NƎK BY NƎK

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Sigyn Blöndal

    10. December 2013

    Verður hægt að panta á netinu – svona fyrir þá sem búa ekki í Rvk?

    • Elísabet Gunnars

      10. December 2013

      Góð spurning! Ég skal komast að því og setja það hér undir hið fyrsta!

      • Elísabet Gunnars

        11. December 2013

        Það verður hægt að kaupa boli hjá UN Women á Íslandi með því að senda póst á hanna@unwomen.is til 18. desember. Þau senda þá svo í pósti. :)