Góðan daginn Ísland (!)
Ert þú upprennandi fatahönnuður eða jafnvel lærður í faginu og langar að láta ljós þitt skína? Nú er sénsinn …
Coke Light í samstarfi við Trendnet og Reykjavik Fashion Festival standa fyrir hönnunarkeppni sem enginn má missa af.
Hannaðu þitt dress , heillaðu dómnefndina og komdu þér þannig á framfæri!
Skráningu til þátttöku lýkur 16. mars svo það er smá tími til stefnu. Keppnin er opin öllum tískuunnendum og því segi ég bara: Einn tveir og í stellingar!
Ég mæli með að sem flestir taki þátt … það er til mikils að vinna.
Öll eigum við okkur drauma …
#TRENDLIGHT á RFF engin spurning.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg