fbpx

DRESS

DRESSLÍFIÐ

DSCF5478

Eins og ég sagði, þá hefur kólnað og ég geng um götur með mína jólahúfu á höfði. Húfan var þó ekki það eina sem ég klæddist þennan daginn… sem betur fer.

Fötin eru kannski svolítið falin undir kápunni en ég klæddist fínu samstæðudressi frá Vila. Dress sem ég sá í október heimsókn minni á klakann. Það varð svo mitt núna í nóvember þegar það hékk ennþá á slánni, bíðandi eftir mér. Ég hef notað það mikið síðan.

DSCF5494DSCF5484DSCF5499

Húfa: Lindex
Kápa. Ofnotuð frá Zöru
Samstæðudress: Vila
Skór: Chloé lookalike frá Focus
Veski: Jean Paul Gaultier fyrir Lindex

Góða fyrstu aðventuhelgi.

xx,-EG-.

NÝ VEFVERSLUN: NTC.is

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Anna

    28. November 2014

    Flott lúkk! Veistu hvort þessi kápa eða svipuð sé enn til sölu?