English Version Below
Síðasta myndin úr Max Factor herferðinni á vel við í dag á sænskum mömmudegi. Dagur sem hefur fært mér fallega rós úr garðinum frá Ölbu og nýtt armband frá Gunnari Manuel (verður uppáhalds fylgihlutur sumarsins) – báðar gjafirnar glöddu mig það mikið að ég brosti allan hringinn, eins og ég geri hér að neðan.
Ég lenti í óhappi með tennurnar á mér fyrir rúmu ári síðan (löng saga ..) og hef síðan þá brosað mun minna en ég var vön. Því finnst mér skemmtilegt að þessi mynd af mér, sem tekin var í “hita leiksins”, hafi verið valin sem einn af mínum faktorum. Ég vil og vona að ég muni geta haldið í brosið svo lengi sem ég lifi.
Armband: Gunnar Manuel, Rós: frá Ölbu, Bolli: Sjöstrand
Myndir: Íris Björk fyrir Max Factor á Íslandi
Makeup: Harpa Kára
Hár: Ásta Haralds
Reynum sem flest að tileinka okkur þennan faktor sem smitar út frá sér. Brostu framan í heiminn, þá mun heimurinn brosa framan í þig – þetta er ekkert flóknara en það!
//
Swedish mothers day gave me a flower from the garden, picked by Alba, and a new bracelet made by Manuel (definitely my new favorite accessory). The presents made me smile, like I do on the photo above – the last one from my Max Factor campaign.
Put a smile on your face! – It’s so important!
Góðar stundir.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg