Góðan daginn! Þetta er útsýnið mitt með morgunbollanum. Falleg forsíða Trendnet tók á móti mér umvafinn nýrri auglýsingu frá íslenska fatahönnuðinum Andreu Magnúsdóttir.
AndreA Boutique hefur hingað til aðeins verið í Hafnafirði en opnar dyrnar á Laugavegi 72 í dag, laugardaginn 18 febrúar – spennandi! Af því tilefni býður verslunin í boð milli klukkan 14 – 17. Ef ég væri ekki hinu megin við hafið þá væri svo sannarlega mætt til að skála við fatahönnuðinn og dugnaðarforkin hana Andreu og hennar teymi. Lesið meira um málið: HÉR
AndreA by AndreA SS17 – myndað af Aldísi Pálsdóttir
Það er margt fallegt í boði í sumarlínu verslunarinnar að þessu sinni. Ég þarf að kíkja í heimsókn eins fljótt og möguleiki er á.
Ertu á leiðinni út í kvöld? Verður helgardressið íslenskt? Gleðilegan laugardag!
Til hamingju með nýju búðina AndreA by AndreA …
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg