Halló Hafnarfjörður !! Þau upphafsorð passa einstaklega vel við að þessu sinni.
Hæ héðan af Vesturgötunni úr gömlu bárujárnshúsi sem bráðum verður ó svo falleg skóbúð Andreu okkar Magnúsdóttur. Byrjið að láta ykkur hlakka til.
VÁ móment kom yfir mig þegar ég labbaði inn í bleiku búðina í gullfallegu gömlu húsi sem síðustu mánuði hefur verið dekrað við svo að hægt sé að opna skóbúð. Skórnir sem ég klæðist á myndinni að ofan eru frá danska merkinu Custommade sem ég hef þekkt í þónokkurn tíma en það hefur ekki verið fáanlegt á Íslandi fyrr en nú. Afþví að ég get ekki verið viðstödd opnun þá fékk ég að taka smá forskot á sæluna … þakklát.
Það sér fyrir endann á framkvæmdum (bravó Óli!) og ég held að dyrnar opni mjög fljótlega.
Lesið líka: SKÓBÚÐIN – STAÐAN , færsla sem AndreA birti í síðustu viku.
Fleira var það ekki að þessu sinni, stolt af þér elsku A.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg