Undirfatnaður er eitt af því sem er árlega á mínum óskalista fyrir jólin. Ég ræði málið og gef kauphugmyndir í Lífinu, fylgiriti Fréttablaðsins í dag.
Jólin nálgast hratt þessa dagana og því kominn tími til að ljúka við jólagjafakaupin fyrir þá sem komast upp með slíkt. Þá er hægt að njóta betur hátíðarinnar í rólegri bæjarferðum sem snúast um notalegar samverustundir. Nýr undirfatnaður er ávallt á óskalista undirritaðrar fyrir jólin og hefur Kertasníkir verið duglegur að uppfylla þá ósk síðustu árin. Þetta er kannski ekki eitthvað sem við biðjum um frá ömmu gömlu, en hentar vel frá maka eða sem lítil aukagjöf „frá mér – til mín“.
Vogue taka sem veitir innblástur –
Vínrautt fyrir jólin –
Basic er best –
Louis Vuitton –
Vogue Germany –
Svart og seiðandi –
Bleikur draumur –
Helena Christensen fyrir Triumph –
Angelica Blick í Lindex –
Það er gleðiefni að sjá þá fjölbreytni sem finna má í úr vali undirfatnaðar í dag. Silki, bómull, blúnda eða eitthvað
allt annað, allt virðist ganga og hefur hver sinn stíl þar eins og annars staðar. Undirfatnaður er einnig orðinn stærri hluti af heildardressinu en það má vel sjást í fallega blúndu upp úr flegnum stuttermabol við réttu samsetninguna. Munum þó að minna er meira þar eins og annarsstaðar. Undirrituð er hrifnust af klassískum fallegum undirfötum með sem minnstum hömlum, engar spangir, púðar eða aukadót. Leyfum náttúrulegum vexti að njóta sín, það sem hentar fyrir mig hentar ekki endilega fyrir þig.
Það jákvæða er að úrvalið hefur sjaldan verið betra á Íslandi og má finna falleg undirföt í öllum verðflokkum.
Won Hundred / GK Reykjavik
NICCE / Einvera
Gallerí 17
Lonely / Jör by Guðmundur Jörundsson
LINDEX –
Vero Moda –
Með rauðan varalit og í nýjum nærfötum fer enginn í jólaköttinn í ár …
_
PS. Ég verð að koma því að hvað forsíða Fréttablaðsins er áberandi falleg í dag. Björt Ólafsdóttir þarf engin undirföt. Sjá: HÉR
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg