Hæ, héðan.
Ég hljóp hratt útúr húsi með uppsett hárið og ekkert makeup þennan daginn. Ég er oft í þeim gírnum snemma morguns, þið þekkið það örugglega fleiri? Þegar líða tók á daginn langaði mig að fríska smá uppá mig og það gerði ég með rauðum vörum – það var ekkert annað í boði ofan í veskinu í þetta skiptið. Varaliturinn er úr sérstakri vorlínu hjá MAC sem ég fjárfesti í rétt fyrir brottför af klakanum í síðasta mánuði.
Það er hálf fyndið að segja frá því að ég féll fyrir umbúðunum áður en ég skoðaði litina sem í boði voru. Þetta er ástæðan –
Svo einstaklega fallegar ekki rétt?
BARBEQUE – vivid orange red (matte)
Þessi matti rauði litur er einn af nokkrum sem í boði eru. Það hjálpaði mér heldur betur í dag að eiga hann innan handar.
Toledo á mínum vörum þessa dagana ..
Skemmtilegt collection sem kallar á mann!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg