Það er algjör misskilningur að það sé einungis hægt að klæðast pallíettu við fínni tilefni. Þó hún setji auðvitað punktinn yfir i-ið þegar þannig ber undir. Ég nældi mér í nýja glitrandi flík sem ég sá fyrir mér mikið notagildi í yfir hátíðirnar sem bráðum banka uppá. Já, dagatalið segir okkur satt þó ótrúlegt megi virðast.
Í kauppælingum mínum inni í versluninni komst ég samt að því að ég fílaði hana ekki síður vel við haustlegt dressið þann daginn, JPG X LINDEX rúllukragapeysa & StanSmith Adidas skór. Svona gæti nýji jakkinn vel virkað. Er það ekki rétt hjá mér?
Maður getur verið efins í pallíettukaupum … en notagildið getur verið meira en maður heldur í fyrstu.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg