fbpx

Vesen dagsins.

Já, kæru vinir, endalaust bobb í báti mínum þessa dagana og í dag tókst mér að næstum því að eyðinleggja það sem ég hef verið að safna.

Jú, ég er að tala um hárið á mér.

Ég er í því þreytandi ferli að safna hári og það er hreint og alls ekki skemmtilegt. Ég var meira segja með rakvélina í höndunum á mér í morgun sem var alveg að þróast í Britney moment.

Mér datt í hug að sýna ykkur þetta smá myndrænt.

Mér líður svona;

En hvernig mér ætti að líða er sirka svona;

hair2

Þetta er allavega planið – ég meira segja er farinn að taka inn töflur í von um að hárið mitt taki vaxtakipp. Krossiði fingrum fyrir mig.

Koma svo!

.

GIRLS GIRLS GIRLS - Eskimo stelpur myndaðar.

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Pattra's

    20. March 2013

    Hahaha ég tryllist Helgi. Fyndni strákur! Ég er einmitt enn að átta mig á því að löngu lokkarnir mínir eru farnir. ;)

  2. Halla

    20. March 2013

    Helgi mér finnst þú flottur eins og þú ert.

  3. Fía

    20. March 2013

    haha þú ert frábær elsku besti !! ekki raka ! bráðum verður það sítt áður en þú veist af :)
    one love á þig!!

  4. Arnbjorg

    15. April 2013

    Að setja kókosmjólk í hárrótina, hafa í í sirka 1 klst og svo skola úr. Það á að gera kraftaverk!! Má nota bara kókosmjólk úr dós ;)