fbpx

VERSLAÐ Á ASOS: SOON TO BE MINE

MEN'S STYLENIKESTYLE

Ekki það að ég syndi í peningum þessa dagana, akke neitt. Kærastinn fékk staðgreiddan Iphone 5S í snemmbúna afmælisgjöf, jú, staðgreiddan, enn og aftur, ekki afþví það er voða sjálfssagt í mínu daglega lífi en eftir að hafa reynt að reyna við starfsmenn hægri vinstri til að komast framhjá lögum og reglum, þá er það alveg gjörsamlega staðfest, en ég geti ekki keypt neitt á raðgreiðslu (heitir þetta kannski rafgreiðsla?) nema ég sé með danskt ökuskírteini.

ALLAVEGA ..

Þrátt fyrir maí vesen þá keypti ég mér samt ..

 

asos

Hef eiginlega ekki hætt að hugsa um þessa skó eftir að ég notaði þá stanslaust þegar ég var heima á Seyðisfirði, litli bróðir minn á semsagt svona og já. Ennþá á bömmer þegar hann sá þá í ferðatöskunni minni áður en ég gat rennt fyrir og flogið í burtu með þá.

asos1

Bam! Sumar! Ég er ekki að rífa upp axlavöðvana mína endalaust til að geta ekki sýnt þá í sumar, oniiii. Djók – Hann er mega næs.

asos2 asos3

Ég sá algjörran töffara á instagram vera í þessum skóm á ströndinni, ÞAÐ ER STRÖND Í KÖBEN, SOLD. Plús það er gríðarlega einfalt að hoppa í svona, vill svo skemmtilega til að ég hef enga þolinmæði fyrir að klæða mig í skó.

asos4

 

Bolurinn sem byrjaði þetta allt saman, ég var auðvitað að gramsa í útsöluvörunum. Þá sá ég þennan og hugsaði: “Já, einmitt, svolítið skemmtilegt” – sem svo já endaði í því að ég skoðaði aðeins meira.

28 maí á fáki frá póstinum að vera fyrir utan dyrnar mínar með þessa ágætu gripi.

JÚRÓ GLEÐIN GÓÐA

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Marta Kristín

    21. May 2014

    Líður alltaf betur þegar ég sé aðra vera háða NIKE – Svo takk :)

    • Helgi Omars

      21. May 2014

      Hahaha! Ég er algjör Nike fíkill! Gott að ég er ekki einn :)