fbpx

TVÖ SNILLDAR ÖPP

I LIKE

Lífið varð örlítið auðveldara um daginn.

Ég er óskipulagður og frestunaráráttu sem, eins og þið getið rétt ímyndað ykkur, getur verið ótrúlega heftandi . Ég hef prófað ýmislegt og loksins hef ég fundið eitthvað sem hentar mér!

Það eru tvö app í símanum mínum sem hafa orðið partur af minni daglegu rútínu og fejandinn hvað ég er ánægður með þau.

Hófí vinkona benti mér á eitt þeirra þegar ég var að tuða við hana hvað ég kom engu í verk þennan dag. Það heitir Wunderlist og það er í rauninni bara to do listi – og mér finnst fáranlega gaman að krossa af þegar ég er búinn með eitthvað. Er búinn að sinna ýmsum (og fjandi mörgum) framkvæmdum síðan ég byrjaði að nota þetta, og finnst það snilld!

Processed with VSCOcam with m5 preset wunderlist1

Mæli hiklaust með þessu!

Næsta heitir Way of life – sem er að mörgu leyti með ágætlega svipuðum tilgangi.

Processed with VSCOcam with g3 preset

Þetta er einfalt, ef ég er búinn að koma mér í ræktina þennan daginn, þá fæ ég grænt! Allt er vænt sem er grænt, ójá, sérstaklega þetta. Einnig ef ég hef fókuserað á mataræðið þennan sama dag þá get ég gefið sjálfum mér grænt! Ef ekki, þá er það augljóslega rautt, og rautt er ekkert skemmtilegt. Þetta er algjörlega hvetjandi, mæli hiklaust með þessu!

NEW IN: ADIDAS SUPERSTAR

Skrifa Innlegg