fbpx

THAILAND MINNINGAR –

PERSONALTRAVEL

Á mínu heimili er stanslaust verið að ræða hvert við ætlum næst, hvenær, hvernig, hvar, og já, hvert! Ég dagdreymi endalaust varðandi frí. Ég er gjörsamlega orðinn háður því að ferðast, og við erum alltaf að setja íbúðarkaup til hliðar því okkur langar að ferðast aaaaðeins meira. Ég var eitthvað að skoða í símanum mínum þegar ég rakst á myndir frá Tælandi og ég fæ – ekki – nóg.

Útsýnið frá hótelinu í Bangkok – mér finnst svo fyndið að ég hef verið þarna fjórum sinnum á tveimur árum –

Uppáhalds eyjan mín í lífinu, Koh Lipe. Þessi hundur var alltaf sofandi þarna, og ég setti alltaf mat fyrir framan hann á kvöldin, en hann rumskaði aldrei. Þreyttur drengur.

Glass noodle salaaaaad – best í heimi!

Útsýnið úr Bungalowinum okkar –

Besta aftersun í heiminum, gefur mega piparmyntu kikk og kælir mann gjörsamlega niður. Elska það –

Sandurinn gjörsamlega eins og púður –

Munkarnir á morgnana, það var mjööög fallegt að fylgjast með á morgnana, en ströndin fyrir utan okkar resort hét Sunrise Beach, svo morgnarnir voru eiginlega stórkostlegir.

Fimleikastjarnan jújú –

Kominn aftur til Bangkok á hótelið sem við féllum kolféllum fyrir – og komum til með að fara þangað aftur og aftur ..

 

Maturinn við sundlaugina var top stöff –

Hér má sjá bestu vöfflu lífsins, ég ætla no joke að gista þarna extra lengi næst aðeins útaf þessari vöfflu.

Þennan morgunmat fengum við klukkan 05:00 um nóttina áður en við fórum í flug, það var í boði að panta morgunmat ef maður náði honum ekki. Geggjuð þjónusta og solid hótel –

Nýja Delhi að ofan! Magnað að sjá –

Styttist í næsta ferðalag gæææææs!!!!

Instagram: helgiomarsson
Snapchat: helgiomars

27 ÁRA -

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

4 Skilaboð

  1. Guðrún

    4. September 2018

    Sæll,
    Má spyrja hvaða hótel ertu að tala um að sé geggjað í Bangkok? Er það Chatrium Riverside eða eitthvað annað?

    kv. GJ

    • Helgi Ómars

      5. September 2018

      Chatrium Riverside er æði, mæli þá sérstaklega með Corner Suite með Corner view –

      Annars mæli ég mjög mikið með The Muse og U Sathorn (algjört uppáhald akkúrat núna) – fer hiklaust þangað aftur!

      Kram

      x

  2. Elin Maria

    20. October 2018

    Hæ Helgi! Við fjölskyldan erum að skipuleggja ferðalag til thailand (bangkok og svo ferðast áfram á einhverja eyju). Myndirnar af hér að ofan af þessu æðislega hóteli (með vöflunum og sundlaugarmatnum) er það hótelið U Sathorn??

    Kv Elin

    • Helgi Ómars

      24. October 2018

      Hæ Elín! Já þetta er U Sathorn!! Gæti ekki mælt meira með því! x