fbpx

Stjörnuspá tvíburans 2013.

Já, það er korter í nýtt ár og persónulega er ég orðinn dauðstressaður að loka þessum kafla og byrja nýjan.

En ég trúi mjög fast á stjörnumerki og ef þú ert í Tvíburnanum þá frábært! Því ég er líka Tvíburi & ætla skrifa stjörnuspá Tvíburans 2013. Eins og þetta hafi verið skrifað um mig, endilega kíkiði hvort þetta hafi einhver áhrif á ykkur.

” Tvíburinn hefur svo sannarlega lært sína lexíu í samböndum á árinu sem er að líða og ekki er ólíklegt að hann sé enn hálfringlaður í kollinum nú þegar nýtt ár er í þann mund að ganga í garð. Líklega er hann loks búinn að ákveða hvort hann ætli að stíga skrefið til fulls eða ekki (samræðurnar sem hann á við sjálfan sig daginn út og inn munu þó ekki hljóðna). Nú stendur valið um það hvort tvíburinn  ætlar að leggja á djúpið á þessu ári eða halda sig á grunnsævi, þar sem hann kann óneitanlega betur við sig. Þrátt fyrir að tvíburinn kunni vel við sig á yfirborðinu mun hann samt alltaf finna hjá sér hvöt til þess að dýpka tilveru sína á næstu misserum og gera hvað hann getur svo líf hans verði traustara, í meira jafnvægi og veiti honum meira öryggi en áður. Þótt það virðist í mótsögn við síbreytileg eðli tvíburans mun hann loks upplifa mikla vellíðan í kjölfar meiri stöðugleika á næstu árum. Vindar breytinganna munu loksins hætta að blása á árinu sem nú fer í hönd og framundan er tími uppbyggingar. Tvíburinn þarf líka að gefa sér tíma til þess að horfa á inn á við og finna sér tíma til þess að sofa, dreyma, skrifa, teikna, halda dagbók eða hvaðeina sem sálin mun þarfnast á næstunni.”

Innanhúsdraumar.

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Halldóra

    30. December 2012

    Hæhæ.

    Hvar fannstu þetta?
    Takk svo fyrir skemmtilegt blogg:)

    Áramótakveðja

    • Helgi Ómars

      31. December 2012

      Hæ Halldóra!! :)
      Ég fann þetta í sunnudagsmogganum. Las hinar og þær eru svo flottar.

      Takk fyrir hrósið & áramótakveðja frá mér x