Ég er staddur á Seyðisfirði og er búinn að vera í hámarksslökun og þæginlegheitum. Mömmu og pabba matur, yndislegu vinirnir, sængin mín, rúmið & hundarnir. Það er ekkert í heimi betra en þetta.
Nú er ég að vinna í því að fresta fluginu mínu um nokkra daga því ég vil ekki fara – vonandi gengur það eins vel og ég er að vona.
Dagurinn í dag var einstaklega rólegur og þæginlegur, ég borðaði með fjölskyldunni, skutlaði foreldrunum í vinnuna og fór með litla bróðir uppá Egilsstaði þar sem hann var að fara í próf. Nýtti tækifærið og fór í ljós & klippingu.
Mig langar eiginlega ekkert að fara.
Húfa: Primark
Bolur: ASOS
Peysa: H&M
Gaddaleðurjakki: ZARA
Kósýbuxur: MAÓ
Skór: Reebok
Skrifa Innlegg