fbpx

SCOUT STELPAN MÍN FYRIR YVES SAINT LAURENT

DANMÖRKWORK

Það sem mér finnst geggjað við starfið mitt hjá Elite er að fá að samgleðjast og fylgjast með krökkunum (tala eins og ég sé fimmtugur) þegar carreerinn þeirra blossast upp.

Nina fann ég í metro árið 2014 ef ég man rétt, í janúar ef ég man rétt. Svo fórum við saman til Kína í desember sama ár þar sem hún tók þátt í Elite Model Look þar sem hún endaði í Top 10, sem var æðislegt.

Hún hefur verið að vinna stanslaust síðan en núna í fyrradag gekk hún fyrir Yves Saint Laurent í París. Þetta var fyrsta collection Anthony Vaccarello fyrir YSL, en hann tók við af meistara Heidi Slimane.

Mjög gaman allt saman! Helgi er stoltur scout.

nina2

 

Nina Marker everyone!

NÝJA JOBBIÐ - SJÓNVARPSSERÍA

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elísabet Gunnars

    29. September 2016

    Þetta er stórt! Nina er meðetta og þú mátt sko vera stoltur.