fbpx

PÁSKAFRÍ – SEYÐISFJÖRÐUR

HOMEÍSLANDNEW INNIKE

 

Þekkiði tilfinninguna þegar þið eruð það afslöppuð að talvan er kannski að verða batteríslaus og þið kjósið að loka henni í staðinn fyrir að reisa efri líkamann upp og teygja sig í snúruna og þrykkja henni í batterísdótið. Ég þekki hana allavega rosalega vel, hvort ég geri. Það er samt bara eitt af fáu, ég vaknaði  einn morguninn og vissi að talvan var inní eldhúsi, hleðslutækið á símanum var við hliðin á svefnherbergishurðinni. Það var of mikið fyrir mig að höndla svo ég lá í rúminu vakandi í rúmlega 45 mínútur, lífið kæru vinir, lífið.

Ég splæsti einnig í 12 tíma svefn með meðfylgjandi þriggja og og hálfan tíma af lúri. Ég hef ekki sofið svo mikið síðan ég var að jafna mig á svæfingu eftir aðgerð.

Ég á tvo hunda sem eru að fanga athygli mína 60% af deginum mínum því ég er meðvirkur og get ekki sagt nei. Þau eru nú orðin vel feit, alltof mikið kúruð og keluð og sýna ekki nánast engum fjölskyldumeðlimum athygli lengur, því þau mundu örugglega segja nei við yfirgang þeirra og frekju, ekki ég. Ég held bara áfram, set þeirra ánægju fram yfir mína, sem ég er samt ótrúlega ánægður með. Ég fæ nú ekki að kyssa þau og knúsa oft.

Ég er búinn að horfa á barn systur minnar í alltíallt þrjá daga, enda fullkomnasta mannvera sem ég hef hitt.

Samt er ég búinn að vera mæta í ræktina, hlaupa uppí fjalli og hlaupa á götunni. Þess inná milli á ég þó til að keyra til Örnu vinkonu sem býr tæplega 200 metrum frá mér.

Ég hef það voða gott.

sey2

Ég fór í Bingó, hið árlega páska bingó. Ég fór ekki bara í Bingó, éééég VANN í Bingó!!!

Ég vinn aldrei neitt, sérstaklega ekki í þessu bingó-i, þegar ég var yngri gargaði ég bingó þrátt fyrir að vera ekki með það til að reyna finna þessa sigur tilfinningu. Ekki í þetta skipti, ó niiii, áfram ég.

sey3

Ég er alveg duglegur inná milli að ég er afslappaður (ég ætla ekki að nota orðið latur, afslappaður, mmhm) – litla sæta líkamsræktin okkar.

sey4

Aftur að vera duglegur, yfir mig hamingjusamur að geta notað nýja jakkann minn – ég er svo ánægður með hann. Ég náði að nota hann í tvo daga í Köben áður en það varð of heitt, svo ég get aldeilis notað hann hér.

sey11

Þessi mynd sýnir alls ekki að ég gangi eðlilega, en ég geri það samt.

sey2 3

Þessi litlu.

sey222

 

Það er mjög vinsælt að hlamma sér ofan á mig og láta sig knúsa og kyssa. Semsagt í langan tíma á morgnana, þegar ég borða morgunmat, hádegismat, ef ég leggst í sófann, ef ég ætla að fara sofa, name it. Ég er með hárbolta í kokinu og fötin mín eru eins og loðfeldur.

GJAFALEIKUR: MERKIÐ MITT - TIL HAMINGJU SANDRA DÖGG!

Skrifa Innlegg