Höldum áfram! Fimm árum seinna – hvað er að mér? jæja ..
Þetta vaaaaar svo næs.
Í París verður allt heillandi, maður að sópa inná lokuðu kaffihúsi fékk mig til að langa springa úr rómans.
Heyrðu er Effel turninn ofmetinn? NEI! Hann er magnaður! Ég elska hann.
Það er Amerísk kona sem er gift honum, no joke. Ég skil hana smá núna.
ooooog sushi! Laxinn og rjómaosturinn sjúklega mikið hit!
Þessa byggingu fann ég bara óvart, ÓVART. Afhverju var enginn búinn að segja mér frá henni? Afhverju veit enginn af henni? Þetta var hjúts og fáranlega fallegt.
Í smá sleik við sólina í Lúxemborgargarðinum ..
.. að spila Sequence, tryllt kombó.
Hitti þetta besta fólk! Ó hvað það var nú ljúft.
Ég ætlaði SVOOO að blæða á mig smá, svo fór ég bara að leita af lyklakippunum.
Hversu fínt? Í alvöru? Hversu fínt? Afhverju erum við ekki að byggja svona hús? Afhverju þarf allt að vera gler? Ég ætla starta samræðum á bland.is með det samme. Tuða um þetta alveg í döðlur.
Svona var þetta bara, kepptust allir um þetta ágætu stóla sem er þarna fyrir fólk að sitja. Svo þetta fína hús já, sem ég veit ekki enn hvað er. Lúxemborgar sendiráðið?
Ein sekúnda, rétt náði að print screena’essa. En Kasper að setja á snapchat. Ég var held ég sé að spila Candy Crush.
Ég fór jákvæður í leðurjakka út, getur nú ekki verið svona heitt. Jakkinn um mittið og ekkert rugl.
Þetta litla 33 cl sæta vatn kostaði 6 evrur, eða 890 krónur. Ekki á hverjum degi sem maður gerir svona gæða kaup!
Þarna biðum við í röð í 45 mínútur til að borðaaa ..
voila! Þetta! Þetta var mjög gott. Sósan einkenndi semsagt þennan stað.
Hann leyfði mér að taka mynd af sér, það var upplevelse útaf fyrir sig. Þessi sæti kall.
Heyrðu já salatið okkar, gleymum því ekki ..
EEEERUÐI að sjá hvaða bók þetta er? Þetta er ÞESSI bók!! Ég er ekki að grínast hvað mig langaði að ræna henni. Hún kostaði nefnilega 73 þúsund kjall, sem ég bara var ekki með budget fyrir. Svo annað hvort stela henni eða múta starfsmanninum, hvað sem er. Gad dem.
Þessi kostaði semsagt rétt tæpan 600.000 krónur, sem ég var ekki alveg með budget fyrir. Næstum því, samt. Alls ekki samt. En þetta er Annie Leibovitz. Ég eeeeeelska hana, vá hvað ég elska hana.
Legenderíska Le Lipp! Svo fínt og franskt ..
Hversu fínt?
Pitch Perfect anyone? Fjandinn að ég missti af þessu
Þarna var Zara, mjög spennandi. Ég er reyndar alveg með Zara í Köben. Zara í París bara miklu meira spennandi. Sálfræðin.
FÆÆÆ EKKI NÓG
Ég sá ekki Kim og Kanye, ég sá ekki Karl Lagerfeld, ég sá engan. EN! Ég sá þessar nááááákvæmlega þessar nunnur ÞRISVAR í París! Einu sinni á Louvre, einu sinni í ísbúð og þarna, að labba yfir gangstéttina. WHAT ARE THE ODDS?
Útsýnið úr Elite höfuðstöðvum.
oooog þar sem ég var að funda, þarna eru Elite men.
ooooog strákurinn minn Laurits! Þau eru heldur betur ánægð með þennan besta dreng.
Bestu þessi ..
Smá biðröð í Louis Vuitton ..
Þessi svaka fínn
Shit, ég er ekki með svona stóran haus. Ég er samt með svona mikið gleraugnafar, engin ýking þar.
Ég var án djóks í sleik við sólina í þrjá tíma, en ég brann annan stigs bruna, og hrukkurnar á enninu mínu grenjuðu upphátt. Þetta er reyndar tan í dag, but still ..
.. ooog heim we go. Tókum taxa á háannar tíma, besta ákvörðun ferðarinnar.
.. oooooog komnir heim <3
Skrifa Innlegg