fbpx

NÝ OG NÆS PARKA FRÁ 66°

66°NorðurI LIKEI WANTMEN'S STYLEPERSONAL

Ég tölti niðrí 66°Norður um daginn og lenti í spjalli og skemmtilega nældi mér í litla aukavinnu. Ég er nú að vinna annan hvern laugardag í búðinni hér í Köben, mér til mikillar gleði!

Allavega í búðinni eru íslensk jólalög og ofur skemmtilegt fólk, en það sem vakti mestan áhuga minn var glæný týpa af parka úlpu. Ég tryllist úr næsi.

Ég er ekki beint með góðan status á pungnum (veski á dönsku sko) til að fjárfesta í þessum, og get ég ekki sagt að ég þurfi annan. En samt, hver veit nema ég fái vinnu bónus frá vinnunni? Jólabónus jafnvel? Kannski það sé jólasveinn þarna úti eftir allt saman sem kemur á sleðanum sínum .. eða einhver sem les á Trendnet? Ég er allavega í L í þessum jakka, þið vitið af því. Annars verð ég í honum þessa aðra hverja laugardaga, það ætti að fylla uppí eitthvað tómarúm.

66

Ég er ekki með stút á munninum þarna í alvöru. Ég veit það lítur allt út fyrir það, en nei .. ég nei. Face spasmi eða eitthvað. Ég er aftur á móti á China time og þreyttur svo .. jú það er það pottþétt.

662

Svo sjúklega næs

663

ELITE MODEL LOOK WORLD FINAL Í KÍNA PART 2

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    17. December 2014

    Flottasta parka sem þeir hafa gert hingað til!!
    Hahaha – það væri best (!) ef þú yrðir í þessari annan hvern laugardag. Þá kæmust þeir ekki upp með annað en að leyfa þér að taka hann með þér heim einn daginn.

    knús xx þú ert dugnaðarforkur minn kæri

  2. Svart á Hvítu

    17. December 2014

    Mjög gott vinnuoutfitt haha:) Tek undir með EG vertu bara nógu mikið í henni þá hljóta þeir á endanum að gefa þér hana hahaha:)

  3. Hilma

    17. December 2014

    Þú ert svo flottur alltaf!! Hlakka til að sjá þig <3