fbpx

NÚVERANDI STATUS

HOMEPERSONAL

Kæru vinir, ég er heima á Íslandi. Ég ákvað þegar haustið skall á að sækja um viku frá vinnunni til að komast til Seyðisfjarðar til mömmu og pabba. Ég er óhræddur að segja það en ég er búinn að eiga leiðinlegt sumar og fann að ég var eiginlega að klepra í lokin svo það að komast heim í smá “meðferð” er bara ólýsanlegt. Ég er alveg ótrúlega heppinn að eiga griðarstað eins og Seyðisfjörð, og er meira og minna búinn að vera úti í náttúrunni með hundana síðan ég kom. Ég er nokkuð vissum að ég muni aldrei þroskast uppúr því að vera prins foreldra minna og gera allt það sem ég gerði þegar ég bjó hérna sem unglingur. Svo næstu daga er ég meira og minna bara að fara slappa af og soga að mér orkunni sem þessi staður hefur uppá að bjóða.

Processed with VSCOcam with t1 preset Processed with VSCOcam with t1 preset

MÍNAR STREETSTYLE MYNDIR Á CPHFW

Skrifa Innlegg