fbpx

NEW IN: LOPAPEYSA Á ÖÐRU LEVELI – GRÍMSEY – 66°NORÐUR

66°NorðurI LIKEÍSLANDNEW INOUTFIT

Ég sá þessa fínu peysu fyrst fyrir löngu, þegar ég var á Revolver showinu á tískuvikunni í Kaupmannahöfn og vakti peysan áhuga minn fyrst þar. Ég var að vinna á vegum 66°Norður og þar fékk ég söguna á bakvið peysuna mér fannst mjög skemmtileg, og hef síðan þá verið extra skotinn í henni.

Hún er ekki þessi klassíska lopapeysa, hún er með víðara hálsmál og er aðeins update-aðari og meira kúl ef þið spurjið mig. Á endanum á ermunum er rautt og blátt garn en það er inspirerað af lopapeysu trommarans Of Monsters and Men þegar hann var í heimsókn hjá fyrirtækinu. Lopapeysan hans var byrjuð að rakna upp á ermunum svo amma hans bjargaði honum með einhverju garni sem hún átti og fyllti uppí með rauðu og bláu, mjög skemmtileg saga á bakvið! Ég talaði um það að mig langaði í svona peysu þegar ég sá hana og fyrir ekki svo löngu voru þau hjá 66°Norður svo einum of góð að gefa mér eina. Ég er himinn lifandi með hana, pínu advanced lopapeysa sem er algjörlega minn stíll, ég er ekki nógu hefðbundin týpa.

01

02

03  04

NEW IN: ECCO SNEAKS

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Ãgústa Birna Árnadóttir

    30. March 2016

    Allt fallegt frá 66 norður, hef verslað síðan það sjóklæðagerðin!! Þessi peysa er mjög flott, soldið nýmóðins, en það passar bel fyrir unga folkið.

    • Helgi Ómars

      4. April 2016

      Æði! En skemmtilegt! Þetta eru alveg hrikalega flottar og góðar vörur hjá þeim :)

  2. Halla

    5. April 2016

    Minn í Cicago borgarstjórapeysu.