fbpx

MÓÐURBRÓÐIR.

PERSONALYNDISLEGT

Systurdóttir mín fæddist 31 mars og það er stórkostleg tilfinning að verða móðurbróðir!

Hún er fullkomin, heilbrigð, draumur og með stór og falleg augu. Ég var búinn að hlakka mikið til að hitta hana og fór beinustu leið frá flugvellinum til Dagnýjar systur og ég næstum því trúði ekki að hún var þarna. Eftirvæntingin var búin að vera svo mikil að ég eiginlega vissi ekki hvernig ég átti að haga mér, ég fékk hana bara í fangið og sogaðist að henni og heyrði ekkert sem var að gerast í kringum.

Þetta er stórkostleg tilfinning og það er ótrúlegt hvað svona getur snert við manni. Þessi litla stelpa er alveg óendanlega elskuð.

Dagný systir keypti sér gamalt og fallegt hús hér á Seyðisfirði og við flugum saman frá Reykjavík á Seyðisfjörð (ókei, Egilsstaði og svo Seyðisfjarðar) sú litla tveggja vikna gömul að fljúga í lélegri rellu í boði Flugfélagi Íslands, svaf allan tímann.

Processed with VSCOcam with x1 preset Processed with VSCOcam with x1 preset

 

frænd 5

 

Vá hvað ég hlakka til að verða pabbi!

PÁSKA GJAFALEIKUR: MERKIÐ MITT.

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Sæunn

    18. April 2014

    Það er alveg ótrúlegt hvað það er stórkostlegt að eignast systkinabörn, maður á svo mikið í þeim og elskar þau svo ótrúlega mikið og heitt og ég fann það bara þegar ég sá systir mína með kúluna að þessi vera sem byggi þar væri einhver sem ég elskaði útaf lífinu og myndi alltaf gera. Til hamingju með þennan nýja titil, þessi dama er heppin að eiga þig sem móðurbróðir. Gleðilega páska :)