fbpx

MISSIR

Síðustu vikur hafa verið erfiðar. Alveg ótrúlega erfiðar. Lífið er oft mjög ósanngjarnt og mig langaði eiginlega bara að skrifa eldsnögg skilaboð til ykkar kæru lesendur.

Af erfiðri reynslu, langar mig að hvetja alla til að þakka fyrir þá sem standa ykkur næst. Passiði ykkur að eyða ekki orku í óþarfa vesen, eða rífast útaf hlutum sem skipta ekki máli. Við vitum aldrei hvað gerist á morgun. Það er auðvelt að segja að það gerist ekkert fyrir mig, vini mína eða fjölskyldu, en maður veit aldrei.

Keyrum alltaf varlega, verum alltaf með belti, pössum uppá fólkið okkar og verum þakklát fyrir það og þá sem við höfum hjá okkur. Það er svo ótrúlega dýrmætt.

Processed with VSCOcam with g3 preset

SÓÐA SAMLOKA A LA HELGI

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1