fbpx

MATARPREPP

MATURPERSONAL

Ég er kominn með nýtt lítið & sætt áhugamál sem er matarprepp.

Ég er endalaust að hugsa um hvað ég get eldað í stórum fjölda, hvernig get ég gert matinn geðveikt hollt, hvaða sósur eru sniðugar, hversskonar marenering er snilld og svo framvegis. Ég hef líka uppgötað hvað það er sjúklega þæginlegt að þurfa ekki að elda í 4 daga, þurfa bara ná í box og skella’ðí öbbann og njóta.

Ég mæli hiklaust með þessu! Sparar peninga & tíma!

Ég er kannski ekki búinn að vera neitt sjúklega duglegur að taka myndir af því sem ég er að gera, en hey, hér er þó smá!

Processed with VSCOcam with f2 preset

Hakkabufff með 3% fitu með basiliku (ég er brjálaður í basiliku þessa dagana) engirfer, hvítlauk & chilli, með sætum kartöflum & broccoli. Þetta er algjört mumms.

Processed with VSCOcam with t1 preset

Þetta er það sem fer í töskuna á morgana, ég borða reyndar ekki öll hrökkbrauðin, en kjúklingur & sætar með walden farms BBQ sósu (0% fita, caloríur, sykur) og sætar kartöflur, skyr, hrökkbrauð með túnfisk & kotasælu og epli.

Processed with VSCOcam with f2 preset Processed with VSCOcam with f2 preset

 

Snilldar hádegismatur – egg, kjúklingur, spínat (notaði frosið), basilika, hvítlaukur & paprika.

Skella þessu í box og inní ísskáp! Ég keypti hjúts pakka með 17 boxum í ikea fyrir 27 krónur, eða rúmlega 500 krónur íslenskar.

Mæli með’essu!

ÚTI BÍÓ & HYGGE

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. sigríður Dúna

    20. August 2014

    Hvar kaupiru sætu kartöflurnar í köben? Hef hvergi séð en víða leitað. Bestu kveðjur SD.

    • Helgi Omars

      20. August 2014

      Heyrðu ég fann þær í Føtex! Mér til mikillar hamingju! Þær voru líka stórar og góðar fyrir litlar 10 DKK – mjög gott allt saman.

  2. Theodóra Mjöll

    20. August 2014

    Snilld! Þú ert svo dugleguuur. Ætla að taka þig mér til fyrirmyndar =)