fbpx

MÆÐRADAGUR – MAMMA MÍN

YNDISLEGT

 

Í dag er mæðradagur og ég vil óska ÖLLUM mæðrum til hamingju með daginn!! xx

Ég er persónulega svo heppinn að eiga mömmu sem hefur verið bestasta besta vinkona mín síðan ég man eftir mér. Við móttökum hugskeyti reglulega og erum einstaklega náinn. Ég er líka rosalega stoltur af því að vera mömmustrákur. Þegar ég var yngri var það ekkert svo “kúl” – en ég man aldrei eftir að hafa fundið fyrir þeirri pressu. Ég man bara eftir mér ungum þar sem ég og mamma töluðum um allt milli himins og jarðar. Í dag eru símtölin á milli Íslands og Danmerkur ófá og getum við talað saman í marga klukkutíma og allt og ekkert.

Ég er foreldrum mínum óendanlega þakklátur fyrir uppeldið sem ég fékk. Að allir eru einstakir, og á að virða alla nákvæmlega eins og þeir eru. Að þora að tala um tilfinningar sínar og að gefa okkur systkinunum kúra undir vængjunum þeirra ef eitthvað bjátaði á. Ég fæ smá samviskubit að vera ekki aðeins betri en ég er í dag, því þá mundi ég reflekta því ágætlega hverskonar uppeldi ég fékk.

Þið getið ekki trúað því hversu stórt hjarta mamma mín hefur. Hún er sú allra besta og hjarta hlýjasta.

035

Foreldrar mínir – eins og þið sjáið að ef að mamma hefði búið í Reykjavík en ekki á Djúpavogi þá hefði hún orðið súpermódel.

mamma2blackandwhite

3

 

Þetta er ágætlega gömul mynd af mér & mömmu, en við höfum ekki verið nógu góð í selfies! Svei mér þá.

______

Gaman að segja frá því að Dagný systir er nú að fá að upplifa sinn fyrsta mæðradag sem nýbökuð móðir. Sú litla veit ekki hversu hún heppin hún er að eiga svona magnaða konu sem mömmu.

Screenshot 2014-05-11 17.08.16

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN MÆÐUR!!!! <3

EUROVISION Í KÖBEN KVÖLD

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Áslaug

    11. May 2014

    vá hvað mamma þín er glæsileg, hún er þvílíka súpermódelið

  2. inga

    11. May 2014

    Fallegur póstur. Linda Evangelista hvað?