fbpx

LITLI BRÓ MÆTTUR!

DANMÖRKMATURPERSONAL

Mér til mikillar gleði kom dásamlegi litli bróðir minn til Kaupmannahafnar á föstudaginn. Ég var búinn að vera í miklu volæði daginn áður, og fékk tuskuíandlit heimþrá í bland við vægt móðursýkiskast. Það var fullkomin tímasetning að litli bró mætti daginn eftir! Hann mætti með þrista, kúlusúkk og nóakropp ásamt Sollu kókosolíu, sem var einnig mikil gleði. Ég ákvað að koma með eitt stórt feitt fokkit þegar kemur að mataræðinu mínu og er búinn að borða stóran hluta af þessu nammi síðan hann kom. Er ég með samvó, nope.

Hann tók ekki í mál að borða lífræna hafra með möndlum og bönunum í morgunmat, svo hann keypti Coco Pops og Nesquick kúlur í morgunmat. Ég kurteisislega hjálpa fylgi honum hvað það varðar, til að vera kurteis, og góður bróðir. Hafrarnir mega bíða þangað til á þriðjudag.

Hann er annars matargæðingur og eldar eins og enginn sé morgundagurinn, hann gefur mér einstaklega mikinn innblástur til að vera enn duglegri í ræktinni, en hann er orðinn massaðari en ég og hann er 5 árum yngri. Ég neita að taka það í mál, svo núna er ég formlega kominn í 5 gírinn, eða ég byrja á morgun. Því þá fer hann, og ekki meiri coco morgunmatur og þá er ég vonandi búinn að stúta öllum þristum og kúlusúkki líka.

Ég er annars að öllu leyti hamingjusamur að þessi drengur sé í heimsókn.

bogi2

 

Mættur!

16

.. og fór strax að elda brunch! Fín tilbreyting á þessu heimili ..

Processed with VSCOcam with f2 preset

Brunch & Hell’s Kitchen

15

OOOOOOOOG EFTIRRÉTTUR!!!!

ASOS NÆS

Skrifa Innlegg