Eins og sum ykkar sáu á Snapchat, þá er næsta jólagjöf frá Dr. Denim Jeansmaker. En ég leitaði sérstaklega til þeirra, því mig langaði að gefa gjafir sem ég get svo innilega mælt með og virkilega góðar gjafir handa ykkur. Ég hef átt Snap gallabuxur frá þeim í nú fimm ár og ég nota þær enn í dag nánast daglega. Ég almennt þoli ekki að kaupa mér gallabuxur. Maður kaupir þær latex þröngar og svo stækka þær og blalala, óþolandi. Snap buxurnar hafa verið eins síðan ég fékk þær fyrir góðum fimm árum. Svo ég gæti no joke, ekki mælt meira með Dr.Denim buxunum. Ég hef bara átt Snap buxurnar og hef bara reynslu á þeim, en þær eru þröngar án þess að vera eins og leggings. Ef þið eigið leið hjá hvet ég ykkur strákar og stelpur, til að prófa þær því þær eru geggjaðar.
Núna á ég Leroy týpuna og þær eru geggjaðar, mjöööög teygjanlegar og getur gert splitt og squat í þeim, samt gallabux! Alveg ótrúlega gott stuff.
EN!! Þið getið unnið gjafabréf í Dr.Denim Jeansmaker á Laugarvegi 7 uppá 30.000 kr –
Það er fimmta jólagjöfin til ykkar – fyrir þessa upphæð getiði fjárfest í hvorki meira né minna en ÞREMUR pörum af – að mínu mati, bestu gallabuxum sem ég hef prófað –
Til að taka þátt:
– Setjið like á Dr.Denim Jeansmaker á Facebook
– Follow @helgiomarsson á Instagram og helgiomars á Snapchat
Og kommentið í komment svo ég viti nú af ykkur :-)
Ég sendi ykkur svo gjafabréfið og sendi ykkur jólakort í leiðinni x
Skrifa Innlegg