fbpx

ÍSLAND HÉR KEM ÉG!

HOMEWORK

Ég er með svo fallega mynd af Egils Appelsín í hausnum, ég verð að fara niðrí N1 á Hringbraut og fá mér grillaða pulsu, helst tvær, og með steiktum lauk og hráum, chilli tómatsósu og smá remólaði, svo þarf ég líka hámark og taka bita og drekka hámark á sama tíma. Nei anskotinn. Hlakka líka pínu lítið að borða á Local, og keyra bíl. Ég á eflaust eftir að vera nokkuð manískur þegar ég lendi.

Ég er annars að fara mynda fyrir MOOD Make Up School sem er mín uppáhalds vinna. MOOD hefur pungað út förðunarsnillingum sem eru að vinna eins og vittleysingar. Er virkilega ánægður að fá að vera partur af svona flottum skóla.

Mæli hiklaust með þessum skóla fyrir þá sem hafa áhuga á förðun.

GLÆNÝ JÖKLA PARKA Í SVÖRTU - OF NÆS

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    4. March 2015

    Þau eru heppina að hafa þig innanborðs. :)

  2. Halla

    4. March 2015

    Góða skemmtun á N1. Grilluð pylsa ekki svo slæm þar.